Umferðaröryggi
Á ferð með börn í bíl
Notið viðurkenndan öryggisbúnað fyrir börn. Öryggisbúnaður fyrir börn á að vera merktur ECE4403/ECE4404 eða FMVSS eða CMVSS
Við kaup á barnabílstól er nauðsynlegt að taka barnið með og máta það í stólinn. Einnig er nauðsynlegt að seljandi sýni hvernig festa á stólinn í bílinn.
Athugið að öryggisbúnaður hæfi þyngd barnsins. Barnabílstólar eru merktir þeirri þyngd sem þeir eru hannaðir fyrir.· Rétt er að nota barnabílstól þar til barnið hefur náð þeirri þyngd sem stóllinn er hannaður fyrir.
Notið bakvísandi barnabílstóla eins lengi og kostur er. Rannsóknir á umferðarslysum í Svíþjóð sýna að börn eiga mesta möguleika á að sleppa við alvarleg meiðsl í umferðarslysum ef þau sitja í barnabílstól sem snýr baki í akstursstefnu. Hægt er að velja um a.m. þrjár gerðir barnabílstóla sem hægt er að snúa öfugt þar til barnið er 18 kg.
Börn þreytast fyrr en fullorðnir að sitja í bíl. Ykkar og barnanna vegna er best að skipuleggja ferðalagið þannig að gert sé ráð fyrir hvíldar- og leikjastoppi með reglulegu millibili. Þar að auki er gott að taka með poka með leikföngum til þess að stytta barninu stundir. Það getur verið skemmtilegt fyrir barnið að finna í pokanum leikföng sem það á, en hefur ekki notað lengi. Spil, blöð og bækur eru heppileg leikföng í bíl. Gátur og hugarleikir geta einnig skemmti ferðafélögum á öllum aldri.
Að hlusta á hljóðbækur hefur reynst foreldrum og börnum vel á ferðalögum.
Reynið að finna áningastað þar sem leikvöllur er eða stað sem býður upp á leik t.d. þar sem fjara er. Þrjátíu til fimmtíu mínútna stopp á leiðinni í fríið getur gert gæfumunin fyrir góða ferðaskapið.
Leikföng í bíl þurfa að vera úr mjúku efni þannig að þau skaði barnið ekki í árekstri.
Ef nauðsynlegt er að gefa barni að drekka í bílnum þarf drykkurinn að vera á plastflösku eða í pappafernu.
Hafið með ykkur nesti í lengri ferðir og finnið góðan áningastað til þess að borða það. Ef börn eru með fá þau miklu meiri útrás fyrir orku sína að borða nesti úti í náttúrunni heldur en að sitja stillt á veitingastað.
Vellíðan fjölskyldunnar í bílnum
Best er að hafa farangur barnanna alveg sér. Börn ættu að hafa hvert sinn poka eða tösku með dótinu sínu í.Ef góð loftræsting (gott loft) er í bílnum áður en ekið er af stað og á meðan á ferð stendur, líður öllum betur.
Ef hlýtt er í veðri ættu börnin að vera léttklædd í barnabílstólnum/sætinu og gott er að fara úr skónum.
Gaman er að hafa bolta með í ferðalagi því allir geta verið með í hinum ýmsu boltaleikjum
MEÐ GÆTNI SKAL UM GÖTUR AKA!



