Umferðaröryggi
Akstur
Dragið ávallt úr hraða við mætingar, sérstaklega á malarvegum. Steinar þyrlast upp en hafa lítinn eigin hraða. Hraði bílanna sjálfra ákvarðar hversu hratt steinar lenda á framrúðu. Hafið hæfilegt bil á milli bíla og verið ávallt við því búinn að ökumenn fyrir framan ykkur þurfi af einhverjum ástæðum að draga úr ferð, t.d. vegna óvæntra hindrana eða einfaldlega vegna þess að þeir ætla að beygja á vegamótum, eða inn á vegarslóða. Þegar slíkir vegarslóðar eru lítið áberandi eykst hættan og sá sem ætlar að beygja inn á þá verður að gefa þeim sem á eftir honum koma merki í tæka tíð með því að stíga nokkrum sinnum á hemlana og setja stefnuljósið á með löngum fyrirvara. Bil í næsta bíl á að vera lengra eftir því sem hraðinn er meiri á veginum. Framúrakstur krefst alltaf skýrrar hugsunar og er eitt af því hættulegasta sem menn gera í umferðinni. Brýnt er að menn reyni ekki framúrakstur nema aðstæður séu fyrir hendi. Í því sambandi er mikilvægt að aka ekki framúr þar sem óbrotnar (heilar) línur hafa verið málaðar á veg til þess að gefa ökumönnum til kynna að þar sé stórhættulegt að aka framúr.
Verið vakandi fyrir búpeningi í vegkanti. Sérstök hætta er á ferðum ef lömb og kind eru sitt hvoru megin við veg því algengt er að lömb hlaupi skyndilega yfir veg þegar bíll nálgast. Ef búpeningur birtist skyndilega á vegi þarf að varast að stofna eigin lífi og annarra í voða með óyfirveguðum viðbrögðum svo sem að aka hugsunarlaust út af vegi þar sem aðstæður leyfa það ekki. Þetta á að sjálfsögðu einnig við um fugla og önnur smádýr. Líta verður vel fram á veginn.
Akið með gætni milli skila á malarvegi og malbiks. Oft myndast hættulegir kantar eða djúpar holur við skilin. Einnig geta hættulegir kantar myndast við vegaxlir, ræsi, skurði og ristarhlið. Á blindhæðum eða rétt neðan við þær má ekki stoppa.
Farið alltaf vel á hægri hluta vegar yfir blindhæðir og draga úr hraða. Blindhæðir eru ekki alltaf merktar sérstaklega á fáförnum vegum fjarri hringveginum. Á eða við blindhæðir, eða annarsstaðar þar sem vegsýn er skert, má ekki stoppa því það getur valdið mikilli hættu. Haldið jöfnum hraða og sem næst hámarkshraða. Of mikill hraði eða of lítill miðað við aðstæður skapar alltaf hættu. Bensíneyðsla er í lágmarki ef hraði er jafn og á um 80 - 90 km/klst.
Það er bannað tala í farsíma við akstur nema viðkomandi ökumaður sé með handfrjálsan búnað tengdan við farsímann. Ef nauðsynlegt er að nota síma skal stöðva bílinn afsíðis og ljúka erindinu. Þótt handfrjáls búnaður sé notaður er ákveðin truflun af notkun símans, við að hringja eða svara auk þess sem mikilvægt eða krefjandi símtal getur truflað athygli ökumanns.

Aka þarf sérstaklega varlega að einbreiðum brúm og draga úr ökuhraða. Tryggja að enginn komi samtímis á móti. Sú almenna regla gildir að jafnaði að sá sem fyrstur kemur að brú fari fyrstur yfir. Sá sem bíður fer vel út á vegbrún og setur stöðuljósin á.
Leggið aldrei út í vöð eða ár nema að kanna vel dýpt og straumþunga áður. Bíllinn verður líka að vera vel varinn fyrir vatni. Einnig þarf að varast að stíga á tengsl (kúplingu) á beinskiptum bíl í miðri á því þá blotna tengsl og þau missa virkni. Athugið líka að hemlar eru mjög slakir eftir að hafa blotnað og tíma tekur fyrir þá að þorna og ná fullri virkni. Ekki ætti að leggja út í straumþungar ár nema að aðrir á bílum séu nálægir.

Akið varlega framhjá reiðfólki við veg og alls ekki gefa hljóðmerki.
Akið varlega framhjá gangandi vegfarendum og hjólreiðafólki sérstaklega þar sem hætta er á steinkasti og aurbleytu. Ef ekið er með tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi eða aðra eftirvagna sem ná útfyrir hliðar bifreiðar skal varast að aka of nálægt þeim.
Þegar ekið er á vegum þar sem hraði er mikill og nokkur umferð verður að fylgjast vel með þar næsta bíl á undan. Auðvelt er að bregðast við einhverju óvæntu hjá bílstjóra í næsta bíl, en ef eitthvað fer úrskeiðis hjá ökumanni þarnæsta bíls er erfitt að bregðast við. Akið með framsýni og fyrirhyggju.
Þegar bílalest myndast ætti sá sem fremstur fer að víkja út á hægri kant og hleypa framúr. Ef hann gerir það ekki og framúrakstur er nauðsynlegur skal alltaf næsti bíll á eftir hægfara bílnum hefja framúraksturinn og svo koll af kolli. Í raun er það annar og þriðji bíll sem myndar bílalestina. Treysti ökumenn þeirra sér ekki framúr þeim fremsta, þurfa þeir að hafa það mikið bil að þeir sem á eftir koma geti komist inn á milli í eðlilegum framúrakstri. Þegar farið er á afskekkta staði eða um hálendi landsins þarf að kynna sér vel veðurspár og tilkynna um ferðir sínar. Ekki má aka utan vega eða merktra slóða.
Ef bíll bilar á vegi skal hættuljós (viðvörunarljós) sett á og reynt að koma bílnum vel út á vegöxl og koma viðvörunarþríhyrningi fyrir um 100 metrum aftan við bifreið til að vara aðra ökumenn við.



