Umferðaröryggi
Öryggi ökumanns og farþega

Öryggisbelti
Allir í bílnum, fullorðnir sem börn, eiga að vera í öryggisbeltum eða öðrum öryggisbúnaði. Hæð höfuðpúða í mörgum bílum er stillanleg og ættu allir að huga að réttri stillingu. Til er öryggisbúnaður fyrir stærri heimilishunda.
Börn undir 150 cm á hæð eiga að vera í sérstökum öryggisbúnaði, í bílstól eða á bílpúða og með spennt belti. Tryggja verður að öryggisbúnaður sé rétt notaður og að hann hæfi stærð og þyngd barnsins. Fylgjast verður með því hvort barn losi öryggisbúnað eða geri hann á einhvern hátt óöruggan svo sem með því að færa þverband öryggisbeltis undir handlegg. Barn á aldrei að vera í framsæti sem er með öryggispúða (loftpúða) sem springur út við árekstur.
Ganga tryggilega frá farangri og lausum munum í bílnum. Þunga eða hvassa hluti á aldrei að geyma inni í bílnum en ef það er nauðsynlegt ættu þeir aldrei að vera við afturrúðu eða ofarlega í bifreið. Við árekstur geta lausir hlutir orðið að byssukúlum, jafnvel fallbyssukúlum, gegn þeim sem eru að öðru leyti vel spenntir í sæti og geta þannig stórskaðað ökumann og farþega. Slíka muni á að hafa á gólfi eða í farangursgeymslu.
Skorða verður vel farangur í farangursrými. Sé notað farangurshylki eða grind á toppi bifreiðar verður að gæta þess að geyma ekki of þunga hluti þar svo þyngdarpunktur bílsins raskist. Ef þyngdarpunktur færist ofar versnar stöðugleiki bílsins og líkur aukast á veltu.
Vera vel hvíldur fyrir akstur. Taka þarf hvíld frá akstri á um það bil tveggja tíma fresti í lengri ferðum.
Hafa farsíma eða GSM síma meðferðis sem unnt er að nota í neyð.
Eins og allir vita mega áfengi og akstur aldrei eiga samleið. Eftir einn - ei aki neinn



