Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Ástand bílsins

Vökvar
Athuga stöðu kælivatns, bremsuvökva, stýrisvökva, rúðuvökva og olíu og bæta við ef með þarf.   
 
Dekk
Athuga hvort varadekk sé í lagi og allur fylgibúnaður til að skipta ef dekk springur, s.s. tjakkur, góður felgulykill og viðvörunarþríhyrningur.       
 
Loftþrýstingur  
Athuga loftþrýsting í dekkjum og varadekki.   
 
Ljósabúnaður
Yfirfara ljósabúnað og endurnýja perur þar sem þörf er á. Ekki má gleyma að yfirfara ljósa- og glitmerkjabúnað eftirvagna.    

þríhyrningur copy.jpg

Rúður
Þrífa rúður vel, innan sem utan, og endurnýja þurrkublöð ef með þarf. Gott ráð er að bera vatnsfælin efni á framrúðu þá helst framrúða betur hrein þrátt fyrir rigningu og óhreinindi frá öðrum bílum.    
 
Varahlutir
Hafa meðferðis nauðsynlegan búnað s.s. viftureim, perur, dráttartaug, nauðsynlega vökva, rakaeyði á brúsa fyrir kveikjukerfi, bensínbrúsa, verkfærasett, startkapla, sjúkrakassa, teppi,  lítið handslökkvitæki, hlífðarvettlinga o.fl.    
 
Eftirvagn  
Eftirvagn má ekki vera þyngri en skráningarskírteini bílsins segir til um. Ennfremur eru vagnar skráningarskyldir sem eru yfir 750 kg að leyfðri heildarþyngd og allir tjaldvagnar, fellihýsi og hjólhýsi. Eftirvagnar eða tengitæki sem eru yfir 750 kg þurfa að vera búnir hemlum. Allir eftirvagnar/tengitæki þurfa að vera búnir afturljósum, stefnuljósum og hemlaljósum. Þyngd eftirvagnsins má heldur ekki fara yfir þau mörk sem tengibúnaðurinn segir til um.   
 
Speglar 
Fyrir akstur þarf að þrífa og stilla spegla vel til að sjónsvið ökumanns sé sem best. Varast ber að skyggja á baksýn með farangri við afturrúðu. Ef dreginn er eftirvagn, tjaldvagn, hjólhýsi eða annað sem hindrar baksýn verður að hafa spegla á framlengdum örmum svo ökumaður sjái aftur með eftirvagninum.

 

 

 


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++