Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

Ökuriti.jpg

Rafrænir ökuritar

Ökuritinn skráir aksturs- og hvíldartíma ökumanns og gerir þannig kleift að hafa eftirlit með að ökumenn og flutningafyrirtæki fari eftir settum reglum um aksturs- og hvíldartíma.  Tilgangurinn með þessum reglum er að skapa betra starfsumhverfi fyrir atvinnubílstjóra og að bæta öryggi á vegum úti.

Rafrænir ökuritar eru litlar tölvur sem komið er fyrir í ökutækjum.  Hver bílstjóri þarf að hafa ökumannskort sem hann setur í ökuritann þegar hann er að keyra og er þannig skráð hvenær hvaða bílstjóri ók hvaða bíl.  Ökuritinn skráir sem sagt hvenær ákveðinn bílstjóri ekur og þar með hvort hann taki sínar lögboðnu hvíldir.  Einnig munu flutningsfyrirtæki hafa sitt eigið kort til þess að auðkenna ökurita sem þeirra ökurita, sem og til að sækja gögn af ökuritanum.

Ástæður fyrir innleiðingu á rafrænum ökuritum hérlendis er margþætt.  Fyrst má nefna að við höfum ekkert val þar sem Evrópusambandið hefur gefið út tilskipun til allra landa í EB og á EES og því verðum við að beygja okkur undir það.  En undirliggjandi ástæður eru fyrst og fremst þær að skapa aukið umferðaröryggi með því að draga úr álagi atvinnubílstjóra á stórum bílum.  Þar með er einnig komið öruggara og betra starfsumhverfi fyrir þessa stétt.  Hingað til hafa verið notaðir svokallaðir skífuökuritar og verða þeir notaðir áfram á meðan allur flotinn endurnýjar sig.  Skífuökuritarnir eru ekki taldir standast tímans tönn.  Þekkt var að menn misnotuðu þessi tæki og voru e.t.v. að keyra með skífu í annars nafni.  Einnig gerir þetta eftirlit auðveldara og þar með ætti að vera minna freistandi að svindla og þar af leiðandi verður umferðin öruggari fyrir vikið.  Að lokum má nefna að gagnasöfnun fyrirtækja verður mun auðveldari og væntanlega verður minni fyrirhöfn fyrir bílstjóra að meðhöndla nýju ökuritana.

Ný lög og reglugerðir koma til vegna þessarar innleiðingar.  Lagagrunnur þarf að vera til staðar til þess að hægt sé að innleiða Evrópureglugerðina um rafræna ökurita.  Skylda þarf fyrirtæki að til að varðveita upplýsingar um akstur sinna ökutækja og ökumanna á þeirra snærum og einnig að veita þessar upplýsingar eftirlitsmönnum ef um það er beðið.  Nýjar reglugerðir munu einnig liggja fyrir um akstur- og hvíldartíma, rafræna ökurita og um verkstæði fyrir rafræna ökurita.

Fyrirtæki þurfa að tileinka sér þessar breytingar á ýmsan hátt og mun ábyrgð þeirra ná víða.  Þau þurfa að þjálfa starfsmenn sína (ökumenn og aðra) í notkun á rafrænum ökuritum.  Þau þurfa, ásamt ökumönnum sjálfum, að tryggja að reglum um aksturs- og hvíldartíma sé fylgt.  Það gera þau með því að fela sínum ökumönnum ekki verkefni nema þannig að þeir geti fylgt reglum um aksturs- og hvíldartíma.  Þau þurfa að útvega sér fyrirtækiskort og sjá til þess að ökumenn þeirra hafi og noti sín ökumannskort.  Fyrirtækin þurfa að hlaða niður gögnum úr ökuritum sinna bíla og ökurmannskortum sinna starfsmanna með reglulegu millibili.  Þessi gögn þurfa þau að geyma tryggilega og afhenda eftirlitsmönnum ef um er beðið.  Einnig munu þau þurfa að sjá um að ökuritarnir séu skoðaðir reglulega (2ja ára reglubundin skoðun).

Ökumenn þurfa að tileinka sér þessar breytingar einnig.  Þeir þurfa að verða sér úti um ökumannskort, geyma það tryggilega og nota það við akstur.  Þeir þurfa því að læra rétta notkun ökuritans (og ætti fyrritækið sem þeir starfa hjá að sjá um að þeir læri á ökuritann).  Einnig er það á ábyrgð ökumanns að fylgja reglum um aksturs- og hvíldartíma, að því gefnu að þeirra fyrirmæli stangist ekki á við lög og reglur.  Fyrst um sinn verða væntanlega sum ökutæki með rafrænum ökuritum og önnur með skífuökuritunum.  Þegar ekið er bíl með rafrænum ökurita og svo farið á bíl með skífuökurita, þarf að prenta út aksturinn úr rafræna ökuritanum og hafa meðferðis við akstur með gamla ökuritanum.  Eins þegar ekið er bíl með skífuökurita þarf að hafa skífurnar meðferðis þegar farið er svo að aka bíl með rafrænum ökurita og jafnvel handskrá inn í rafræna ökuritann aksturinn sem skráður er á skífuna.

Ökumannskortin eru á margan hátt sambærileg gömlu skífunum.  Á kortið er ritað virkni ökumanns og geymir hvert kort 28 daga í senn.  Því er líklegt að lögboðið verði að hlaða niður gögnum af kortunum á a.m.k. 3 vikna fresti.  Skífurnar geyma daglega virkni, hraða, vegalengd og atburði.  Ökuritinn sjálfur geymir hraðaferil í 24 tíma.  Eins og með skífurnar er ekki hægt að fjarlægja kortið á meðan á akstri stendur og lögboðið verður að ökumenn geymi kortið og hafi það í ökuritanum við akstur.  Ökuritinn sjálfur geymir um 1 ár af akstursgögnum og er þannig akstur manna tvískráður, bæði á kort mannsins og í ökurita bílsins.

Ökuritakortin

ökumannskort.jpgFjórar tegundir korta munu ganga að ökuritanum.  Fyrst skal nefna ökumannskortið sem ökumenn þurfa að hafa meðferðis til þess að geta ekið bílum með rafrænum ökuritum.  Það er hvítt, persónubundið og geymir aksturs- og hvíldartíma eigandans í 28 daga.  Hvert kort gildir í 5 ár en enn sem komið er. 

fyrirtækjakort.jpg

Fyrirtækiskort eru gul og gilda eins og ökumannskortin í 5 ár.  Fyrirtæki sem eiga eða reka ökutæki sem falla undir gildissviðið þurfa að nota þessi kort til að afmarka sína notkun á einstökum ökutækjum og til að hlaða niður upplýsingum úr ökuritum, sem þeim er síðan skylt að afhenda eftirlitsaðila þegar þess er óskað.

Tvö önnur kort, eftirlitskort og verkstæðiskort, eru svo notuð af eftirlitsaðilum annars vegar og verkstæðum hins vegar og er virkni þeirra sniðin að starfsemi þessara aðila.

 

Fréttir af ökuritum

þriðjudagur 24. júlí 2007 kl. 10:30

Greiningarhugbúnaður frá Stoneridge

Hekla hf, vélasvið selur niðurhalsbúnað og greiningarforritið OPTAC frá Stoneridge.
Lesa meira...

mánudagur 14. maí 2007 kl. 09:30

Leiðbeiningarbæklingur - Tákn rafrænna ökurita

Vegagerðin hefur útbúið leiðbeiningarbækling þar sem tákn rafrænna ökurita eru útskýrð.
Lesa meira...

mánudagur 30. apríl 2007 kl. 11:14

Íslenskar leiðbeiningar fyrir Stoneridge ökurita

Íslenskar leiðbeiningar á geisladiski fylgja öllum ökuritum frá Stoneridge.
Lesa meira...

föstudagur 27. apríl 2007 kl. 14:43

Notkunarleiðbeiningar v/ rafrænna ökurita (VDO)

Siemens VDO á Íslandi hefur nú gefið út leiðbeiningarbækling á íslensku varðandi notkun á rafrænum ökuritum.
Lesa meira...

miðvikudagur 1. nóvember 2006 kl. 14:39

Fyrirtækjakort og niðurhalslyklar (download keys)

Eitthvað hefur verið á reiki hvernig skuli ná gögnum af ökuritum og inn á tölvu til geymslu. Fyrirtækiskortið sjálft virkar í raun aðeins sem lykill að ökuritanum og leyfir gagnafærslu af ökuritanum en gögnin sjáf fara hins vegar ekki inn á fyrirtækiskortið.
Lesa meira...

miðvikudagur 25. október 2006 kl. 10:30

Ökuritakort fyrir fyrirtæki

Öll fyrirtæki sem eiga ökutæki með rafrænum ökurita þurfa að verða sér úti um tvenns konar kort. Ökumannskort og fyrirtækiskort.
Lesa meira...

þriðjudagur 26. september 2006 kl. 15:46

Framleiðsla á ökuritakortum hafin

Nú er hægt að sækja um ökuritakort fyrir rafræna ökurita.
Lesa meira...

fimmtudagur 15. júní 2006 kl. 10:25

Póstlisti

Nú getur þú skráð þig á póstlista og fengið fréttir/upplýsingar um rafræna ökurita sendar með tölvupósti.
Lesa meira...
Reglugerð um aksturs- og hvíldartíma Ökuritar og notkun Prófun ökurita Reglugerð - eftirlit

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++