Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Handfrjáls búnaður

djofull.jpg

 

- Hver er sektin við að tala í farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað?

Sektin hefur verið ákvörðuð 5.000 kr.

- Ég á gamlan farsíma sem ekki er hægt að fá handfrjálsan búnað við. Hvað get ég gert til að nota símann minn?

Best af öllu er að tala alls ekki í farsíma í akstri og fyrir þá sem ekki eiga kost á að eignast handfrjálsan búnað er það besta lausnin. Hins vegar er sá möguleiki að stöðva bílinn á öruggum og góðum stað og tala þar.

- Sumir segja að það að tala í farsíma, jafnvel þótt handfrjáls búnaður sé notaður, trufli ökumenn í akstri. Af hverju er ekki alveg bannað að tala í síma í akstri?

Reynslan er sú að flestar þjóðir hafa viljað fara sömu leið og við Íslendingar, að gera fólki skylt að nota handfrjálsan búnað. En ekki má gleyma því að símtal getur reynt á athygli fólks og valdið truflun. Þess vegna þurfa allir að takmarka notkun símans eins og kostur er.

- Hafa orðið mörg slys vegna þess að ökumenn hafa verið að tala í farsíma?

Það hafa áreiðanlega orðið mörg slys og óhöpp vegna þess að ökumenn hafa verið að tala í farsíma. Það er hins vegar líklegt að flestir sem lent hafa í slíku hafi ekki verið viljugir til að viðurkenna það og það þess vegna ekki komið fram í lögregluskýrslum eða á tjónstilkynningum.

- Núna er bannað að tala í farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað. En getur ekki margt annað truflað ökumann við akstur, eins og til dæmis að reykja, borða o.s.frv.?

Það er alveg rétt. Það er margt sem getur truflað ökumann við aksturinn og þess eru dæmi að slys hafi orðið vegna slíkra atvika. Það sem er hins vegar sérstakt við farsímana er að það kallar á mikla einbeitingu að velja númer, hvað þá að senda SMS-skilaboð, sem eru orðin stór hluti af tjáskiptum margs fólks á degi hverjum. En auðvitað þarf alltaf að hafa fulla athygli við aksturinn ef vel á að fara.






Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++