Umferðaröryggi
Refsipunktakerfið

- Hvernig virkar refsipunktakerfið?
Árið 1997 var tekið upp refsipunktakerfi á Íslandi en slíkt kerfi hafði reynst mjög vel meðal annarra þjóða. Kerfið gerir ráð fyrir að þeir brotlegu í umferðinni safni refsipunktum. Þegar punktar verða 12 á þriggja ára tímabili missir ökumaðurinn ökuréttindin í 3 mánuði. Refsipunktar fyrir brot fyrnast á þremur árum þ.e. punktar fyrir ákveðið brot falla niður af ökuferli ökumannsins þegar þrjú ár eru liðin frá broti. Við útsendingu sektartilkynningar er tekið fram hvort brotið leiði til refsipunkta og þá hversu margra. Einnig er tilgreint hversu marga punkta í heild ökumaðurinn hefur fengið. Refsipunktakvótinn er aðeins minni fyrir þá sem eru með bráðabirgðaskírteini sem er til þriggja ára. Þar er kvótinn 7 refsipunktar á þriggja ára tímabili. Refsipunktum er beitt vegna alvarlegustu brotanna, þó ekki við ölvunarakstri því þar gilda sérstakar sviptinga- og sektarreglur. Hér má sjá töflu yfir þau umferðarlagabrot sem refsipunktakerfið tekur til og þær sektir sem þeim fylgja. Sjá enn fremur reglugerð um ökuferilsskrá og punktakerfi vegna umferðarlagabrota.
- Hversu margir refsipunktar eru gefnir út á hverju ári?
Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra fengu alls 14.977 ökumenn staðfesta umferðarpunkta árið 2002. Árið 2003 voru punktarnir 14.355 samkvæmt bráðabirgðatölum.
- Á hvaða aldri eru þeir sem fá refsipunkta?
Ökumenn á öllum aldri fá punkta en langflestir eru þeir á aldrinum 17-25 ára.
- Hvert er kynjahlutfall þeirra sem fá refsipunkta?
Mun fleiri karlmenn en konur fá refsipunkta. Árið 2002 fengu 11.600 karlmenn punkta en 3.377 konur og samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2003 fengu 10.992 karlmenn punkta það ár en 3.363 konur.
- Hversu margir eru sviptir ökuréttindum vegna punktasöfnunar á hverju ári?
Árið 2002 voru 148 einstaklingar sviptir ökuréttindum á grundvelli punktasöfnunar og er um talsverða fjölgun frá árinu á undan að ræða þegar 89 einstaklingar voru sviptir af sömu ástæðu. Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2003 voru 72 sviptir ökuréttindum vegna punktafjölda það ár, 68 karlar og 4 konur. 67% þeirra sem sviptir voru ökuréttindum voru 20 ára eða yngri.



