Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Vegaraxlir

 

- Hvernig á að nota vegaraxlir?

Í minnisblaði um vegaröxl sem birt var í ágúst 2003 á vef Umferðarstofu stendur: 


Með hliðsjón af framansögðu má vera ljóst að bifreiðastjórum er heimilt samkvæmt umferðarlögunum að hleypa umferð fram hjá sér með því að aka af akbraut út á vegaröxl enda sýni þeir ítrustu varúð og aki varlega. Jafnframt má vera ljóst að þeim er ekki heimilt að aka áfram eftir vegaröxlinni, annað hvort skal aka strax inn á akbrautina eða nema staðar. Þegar ekið er af vegaröxl inn á akbrautina, skal víkja fyrir umferð um akbrautina. Vegaröxl er samkvæmt umferðarlögunum, eins og þegar hefur verið lýst, fyrst og fremst svæði fyrir gangandi vegfarendur en auk þess öryggissvæði fyrir ökutæki sem t.d. þarf að stöðva vegna bilunar. Landið, sem Reykjanesbrautin liggur um, er víða úfið hraun þar sem erfitt er um vik að víkja af akbrautinni, t.d. ef ökutæki bilar. Umferð um brautina er með þeim hætti að stórhættulegt er að skilja þar eftir ökutæki á akbrautinni. Það fer ekki saman að nota vegaraxlir á Reykjanesbraut fyrir gangandi vegfarendur, fyrir hjólreiðamenn, sem öryggissvæði og sem akbraut, allt í senn.

Minnisblaðið í heild sinni má nálgast hér.

Vegaröxl copysmall.jpg

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++