Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Eftirvagnar, hagnýtar upplýsingar

Kerra og bíllHagnýtar upplýsingar um kerrur, hestakerrur, tjaldvagna, hjólhýsi og aðra eftirvagna fyrir fólksbifreiðar.

Ljósabúnaður eftirvagna

 Allir eftirvagnar skulu búnir ljósum, sem eru hliðstæð aftur- og hliðarljósum bifreiða:

     Allir eftirvagnar:
  • Stöðuljós, aftan og að framan ef breidd er meira en 1,6 m.
  • Hemlaljós
  • Stefnuljós
  • Þokuljós
  • Númeraljós
  • Glitaugu, þríhyrnd rauð að aftan
  • Glitaugu, ferhyrnd hvít að framan
  • Glitaugu, ferhyrnd gul á hlið
     Eftirvagnar breiðari en 2,3 m.:
  • Breiddarljós, tvö hvít að framan og tvö rauð að aftan
     Eftirvagnar lengri en 6 m.:
  • Hliðarljós

Speglar

Ef eftirvagn hindrar baksýn úr dráttarbílnum þarf að framlengja hliðarspegla bílsins báðu megin. Speglarnir skulu gera ökumanni kleift að sjá beggja vegna aftur með ækinu. 

Lengd og breidd eftirvagna

Eftirvagn má ekki vera breiðari en  2,55 metrar og ekki ná meira en 30 cm út fyrir hvora hlið dráttarbílsins, þ.e. ekki vera meira en 60 cm breiðari en dráttarbíllinn.
Almennar reglur gilda um lengd eftirvagna. Sem ekki mega vera lengri en 12 metrar. Hámarkslengd bíls og eftirvagns er 18,5 metrar 

Heildarþyngd eftirvagns

Eftirvagn má aldrei vera þyngri en skráð er í skráningarskírteini dráttarbílsins, annars vegar fyrir vagn án hemla og hins vegar fyrir vagn með hemlum.
Í eldri bílum eru þessar þyngdir ekki skráðar í skráningarskírteini og gildir þá reglan að eftirvagn án hemla má ekki vera þyngri en helmingur af eiginþyngd dráttarbílsins.

Hemlabúnaður eftirvagns

Allir eftirvagnar með leyfða heildarþyngd yfir 750 kg skulu búnir hemlum. Oftast er um að ræða svokallaða ýtihemla eða rafmagnshemla á vögnum með leyfða heildarþyngd 3500 kg. eða minna.  Á þyngri vögnum skulu hemlar vera samtengdir hemlum dráttarbílsins.
Ekki er skylt að hafa hemlabúnað á eftirvagni með leyfða heildarþyngd 750 kg., eða minna.  Rétt er að benda á að einungis stærstu og öflugustu fólksbílar (og jeppar) mega draga hemlalausa vagna sem eru sem næst 750 kg þungir.

Hámarkshraði með eftirvagn

Almenna reglan er sú að fólksbifreið og sendibifreið með eftirvagn má ekki aka hraðar en 80 km/klst. Bílar með óskráð tengitæki mega ekki fara hraðar en 60 km/klst. Enn munu vera í umferðinni nokkrir gamlir eftirvagnar, sem eru með leyfða heildarþyngd meiri en 750 kg og án hemla. Eru þeir frá þeim tíma áður en reglur voru settar um að allir eftirvagnar með leyfða heildarþyngd yfir 750 kg skuli búnir hemlum. Hámarkshraði með þessa eftirvagna er 60 km/klst en rétt er að benda á að ekki eru nema fáir bílar sem mega draga þessa vagna.

ABS hemlar

Margir nýlegir fólksbílar eru búnir svokölluðum ABS (anti block system) hemlum. Eftirvagnar með ýtihemla eru sjaldan með þennan búnað. Þessi samsetning getur verið hættuleg þegar nauðhemlað er á miklum hraða á blautum vegi. Hjól bílsins stöðvast ekki þannig að hægt er að stýra bílnum við slíkar kringumstæður. Öðru máli gegnir um vagninn, sem missir veggripið og getur lagst fram með bílnum.

Ökurettindi.gif

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++