Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Færð á vegum og veður

Upplýsingar um færð á vegum er að finna á vef Vegagerðarinnar.  Þar er hægt að sjá greinargóð kort af helstu vegum landsins með upplýsingum um veður og færð.  Upplýsingarnar uppfærast sjálfkrafa með skömmu millibili og eru taldar áreiðanlegar. Athugið þó að Vegagerðin ábyrgist ekki að þau gögn, sem þar má finna, séu ætíð aðgengileg og uppfærð. Þá er Vegagerðin ekki heldur ábyrg fyrir skaða sem hljótast kann af völdum skorts á upplýsingum eða rangra upplýsinga á vefþjóni hennar.

Veðurspár má einnig nálgast á vefsvæði Veðurstofu Íslands. Enn fremur er hægt að afla upplýsinga um færð og veður með því að hringja í þjónustunúmer þessara stofnanna. Þjónustunúmer Vegagerðarinnar er 1777 og þjónustunúmer Veðurstofunnar er 902 0600. Utan hefðbundins afgreiðslutíma er hægt að nálgast upplýsingar um veður og færð í númerinu 1779 (talvél).


Vegagerðin birtir ítarlegar upplýsingar um vetrarþjónustu og snjómokstursreglur á þjóðvegum landsins á vefsvæði sínu.



        

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++