Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Umferðarfræðsla barna

Börn á leikskólaaldri
Á Íslandi hefur farið fram skipulögð umferðarfræðsla fyrir börn á leikskólaaldri frá árinu 1967. Fræðslan var skipulögð af Umferðarnefnd Reykjavíkur í samvinnu við lögreglustjóraembættið í Reykjavík og Umferðardeild borgarverkfræðings. Árið 1968 hóf bréfaskólinn Ungir vegfarendur göngu sína. Bréfaskólinn felur í sér að öll börn á aldrinum 3-7 ára fá fræðsluefni sent heim til sín. Námsefnið er mjög fjölbreytt en m.a. fá börnin bækur, spil og hljóðbækur. Árið 2003 hófst endurnýjun á námsefni Bréfaskólans með útgáfu bókaflokksins um Krakkana í Kátugötu og lauk endurnýjun námsefnisins árið 2007. Bækurnar um Krakkana í Kátugötu er átta talsins. Höfundar bókanna eru þau Sigrún Edda Björnsdóttir rithöfundur og Jean Posocco teiknari. Umferðarstofa ásamt sveitarfélögunum í landinu bjóða börnum og foreldrum þeirra þessa umferðarfræðslu endurgjaldslaust.

Umferðarstofa hefur einnig látið framleiða sérstakan tölvuleik með Matthildi, Dodda og innipúkanum í aðalhlutverki.

Enn fremur starfrækir Umferðarstofa sérstakan umferðarskóla fyrir 5 og 6 ára leikskólabörn á hverju vori og fram á sumar. Þar sjá leikskólakennarar og lögregluþjónar, í samstarfi við fræðslufulltrúa Umferðarstofu, um að fræða börnin um umferðina og hvernig eigi að hegða sér í henni. Meðal annars er fjallað um öryggi barna í bílum, hvernig eigi að fara yfir götu, hvar öruggast sé að hjóla og leika sér úti og hvers vegna það er mikilvægt að nota hjólreiðahjálm. Í lokin er sýnt myndbandið Felix finnur dýrin en þar fylgjumst við með hvernig náunganum Felix tekst að fóta sig í umferðinni.

Grunnskólar
Frá því að grunnskólinn fluttist til sveitarfélaga hefur umferðarfræðsla í grunnskólum landsins ekki verið í föstum skorðum. Í umferðaröryggisáætlun er fyrirhugað að efla þá fræðslu til muna með því að gera hana að föstum lið í námskrá leikskóla og grunnskóla og jafnvel að koma á samþættingu umferðarfræðslu inn í framhaldskóla. Markmið fræðslunnar er að:

  • koma umferðarfræðslu inn í skólanámskrár allra grunnskóla  
  • halda námskeið í umferðarfræðslu fyrir grunnskólakennara í grunnskólum landsins þeim að kostnaðarlausu
  • efla námsefnisgerð í umferðarfræðslu og stuðla að þróun náms- og fræðsluvefs um umferðarmál.  
Gerður var sérstakur samningur á milli Umferðarstofu og Grundaskóla á Akranesi haustið 2005 um eflingu umferðarfræðslu á grunnskólastigi. Grundaskóli er móðurskóli í umferðarfræðslu og þannig öðrum grunnskólum á Íslandi til fyrirmyndar og ráðgjafar á þessu sviði. Á vefnum umferd.is er svo hægt að finna ýmsan fróðleik og leiki sem tengjast umferðarfræðslu og er vefurinn hugsaður fyrir nemendur, kennara og foreldra.

Hægt er að hafa samband við fræðslufulltrúa á umferðaröryggissviði Umferðarstofu.

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++