Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Öryggispúðar


Öryggispúðar eru orðnir staðalbúnaður í nánast öllum nýjum bílum nú til dags. Þeir eru staðsettir í stýri bílsins og fyrir ofan hanskahólfið auk þess sem sumir bílar eru búnir öryggispúðum í hliðum bílhurðanna. Öryggispúðar þenjast út á örskotsstund þegar þungt högg kemur á bílinn (t.d. við árekstur) og verja ökumann og farþega.

Í reglugerð um gerð og búnað ökutækja sem dómsmálaráðuneytið gefur út segir um öryggispúða: Öryggispúði er belgur sem blásinn er upp í ökutæki við skyndilega hraðabreytingu þess, til varnar ökumanni og/eða farþegum.
Síðustu 10-15 árin hafa margar bílategundir verið fáanlegar með tiltölulega litlum púða í stýrinu. Skynjari setur púðann af stað við framanáárekstur þegar hraðinn er yfir 15-16 km/klst.


Saman miða öryggisbeltin og öryggispúðarnir að því að draga úr áverkum ökumanns og farþega ef slys eða óhapp á sér stað. Rannsóknir sýna að öryggispúðinn, samfara notkun öryggisbelta, minnkar mjög líkurnar á höfuðmeiðslum, sérstaklega hjá ökumanni. Öryggispúðarnir koma alls ekki í staðinn fyrir beltin. Þvert á móti getur öryggispúðinn reynst lífshættulegur ef fólk er laust í framsætunum.



Börn og öryggispúðar
Það er hættulegt fyrir börn að sitja í framsæti bifreiðar sem búin er öryggispúða.  Hvernig getum við vitað hvenær þeim er óhætt að sitja í framsætinu? Sænskar og bandarískar rannsóknir leiða í ljós að börn geti slasast alvarlega af völdum öryggispúða.  Hann springur út af miklu afli og getur meðal annars lent á andliti barns.

Mælt er með að börn sem eru innan við 150 sm. að hæð og undir 40 kg. að þyngd sitji ekki í framsæti bifreiðar þar sem uppblásanlegur öryggispúði er fyrir framan. Þess ber að geta að slíkur púði er í nánast öllum nýlegum fólksbifreiðum.

Séu hliðaröryggispúðar þarf að sjá til þess að barnið halli ekki höfðinu upp að bílhurðinni.

Ítarefni um öryggispúða:
Vegna breytinga á umferðarlögum - grein um öryggispúða, börn og lágvaxið fólk eftir Margréti Sæmundsdóttur fræðslufulltrúa á Umferðarstofu.
Börn og öryggispúðar - kafli úr fræðsluefni frá sænsku umferðaröryggisstofnuninni NTF um börn og öryggispúða.

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++