Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Varahlutir


þríhyrningur copy.jpgÍ bílnum ættu ávallt að vera til staðar varahlutir og annar búnaður sem gæti komið að góðum notum ef eitthvað fer úrskeiðis, bíllinn bilar eða óhapp á sér stað. Í því sambandi má nefna viftureim, perur, dráttartaug, nauðsynlega vökva, rakaeyði á brúsa fyrir kveikjukerfi, bensínbrúsa, verkfærasett, startkapla, viðvörunarþríhyrning, sjúkrakassa, teppi, lítið handslökkvitæki, hlífðarvettlinga og fleira.

Gætið þó þess að stórir og þungir hlutir eins og verkfærasett og handslökkvitæki séu ekki lausir í bílnum því að þá geta þeir reynst mjög hættulegir ef árekstur verður. Stórir og þungir hlutir eru yfirleitt best geymdir í farangursrými bílsins en ef nauðsynlegt er að hafa þá inni í honum eiga þeir aldrei að vera ofarlega eða við afturrúðuna.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++