Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Öryggisbelti


Belti copy.jpgBeltin bjarga
Allir í bílnum, fullorðnir sem börn, eiga að vera í öryggisbeltum eða öðrum öryggisbúnaði. Beltin eru ótvírætt einn mikilvægasti öryggisbúnaður bílsins og hefur notkun þeirra oftar en ekki bjargað mannslífum, komið í veg fyrir slys á fólki í umferðaóhöppum og dregið mjög úr áverkum í öðrum slysum. 

Börn undir 6 ára eiga að vera í sérstökum öryggisbúnaði, í bílstól eða á bílpúða og með spennt belti. Tryggja verður að öryggisbúnaður sé rétt notaður og að hann hæfi stærð og þyngd barnsins. Fylgjast verður með því hvort barn losi öryggisbúnað eða geri hann á einhvern hátt óöruggan svo sem með því að færa þverband öryggisbeltis undir handlegg. Barn á aldrei að vera í framsæti sem er með öryggispúða (loftpúða) sem springur út við árekstur. Nánari umfjöllun um öryggi barna í bílum er að finna á þessari síðu og á heimasíðu Árvekni

Ítarefni um öryggisbelti: 
Skýrsla um bílbeltanotkun ökumanna á þjóðvegum landsins - unnin af umferðarfulltrúum Umferðarstofu og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sumarið 2003.
Beltin geta skipt sköpum - pistill fluttur í Samfélaginu í nærmynd á Rás 1 þann 29. 12. 2003.
Notkun öryggisbelta - pistill fluttur í Samfélaginu í nærmynd á Rás 1 þann 20. 10. 2003.





Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++