Umferðaröryggi
Höfuðpúðar
- Hvaða gagn gera höfuðpúðar?Hálshnykkir eru algengir áverkar í umferðarslysum, einkum í aftanákeyrslum. Það gerist þegar höfuðið kastast snöggt fram á við en líkaminn sjálfur er stopp. Slíkir áverkar geta verið mjög alvarlegir og háð fólki í leik og starfi það sem eftir er. Höfuðpúðum er ætlað að draga úr þessum hnykk en til þess að gera sitt gagn þurfa þeir að vera rétt stilltir.
- Hvernig stillir maður höfuðpúðann?
Rétt stilltur höfuðpúði er fast við hnakkann, það hátt að ef maður leggur flata höndina á höfuðið þá snertir maður efri hluta púðans. Púðinn þarf að liggja það þétt að hnakkanum að bilið sé ekki meira en sem nemur lófabreidd.
- Hvernig er best að koma í veg fyrir hálsáverka?
Besta leiðin til að koma í veg fyrir hálsáverka er að sýna ávallt varúð í akstri, hafa nægilegt bil á milli bíla og fylgjast vel með umferð sem kemur á eftir í baksýnisspeglinum. Ef okkur sýnist stefna í að ekið verði aftan á bílinn okkar er best að þrýsta hnakkanum þétt að höfuðpúðanum.



