Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Ljósabúnaður


Gildi ljósabúnaðar bifreiða fyrir umferðaröryggi er ótvírætt og því er afar mikilvægt að hann sé alltaf í góðu lagi og að ökumenn noti hann eins og til er ætlast. Mælt er með því að ökumenn fylgist reglulega með ljósunum og geri úrbætur strax sé þeirra þörf. Þá er ekki vitlaust að hafa ætíð varaperur til taks í bifreiðinni ásamt öðrum varahlutum og öryggistækjum. Því miður er alltof algengt að menn dragi það að láta lagfæra ljósabúnað bíla sinna þó að öllum ætti að vera ljóst mikilvægi þess.

 Ef til vill eru menn kærulausari í þessum efnum þegar dagur er hvað lengstur og yfirleitt bjart allan sólarhringinn. Kannski hugsa menn með sér að það liggi ekkert á að skipta um peru í bílljósinu þar sem birtan sé næg. Í umferðarlögum er engu að síður skýrt kveðið á um að ljós bifreiða skuli alltaf vera tendruð og er það ekki að ástæðulausu. Hér á landi eru ekki aðeins birtuskilyrði síbreytileg eftir árstíma heldur er hér enn fremur allra veðra von, skyggni gjarnan slæmt og sýn ökumanna takmörkuð af þeim sökum. Að auki er það staðreynd að bifreið með ljósin tendruð er mun sýnilegri í umferðinni en sú sem hefur ljósin slökkt. Það á einnig við á vorin og sumrin.

Auk framljósa er mikilvægt að önnur ljós og glitmerki bílsins séu ávallt í góðu lagi og hrein.

Umferðarstofa hvetur alla ökumenn til að vera upplýsta í umferðinni. Þar gildir nefnilega að sýna sig og sjá aðra - allan ársins hring.


Ítarefni um ljós og ljósabúnað:
Verum upplýst í umferðinni - pistill fluttur í Samfélaginu í nærmynd á Rás 1 þann 7. 7. 2003.



Fræðslumyndband - Háu og lágu ljósin

You must install the Flash Player to watch this movie online.

Fræðslumyndband - Ljósabúnaður bifreiða

You must install the Flash Player to watch this movie online.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++