Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Stefnuljós

Hvar gefa á stefnuljós og hvar ekki er nokkuð sem margir velta fyrir sér. Þrátt fyrir lagabókstafinn eru ekki allir á eitt sáttir um það hvernig stefnuljósin skuli notuð. Meginhlutverk stefnuljósa er öðrum til leiðbeiningar í umferðinni. Samt er brýnt að þau séu alltaf notuð hvort sem aðrir vegfarendur eru í augsýn eða ekki.

Hvar og hvenær á að gefa stefnuljós?
  • Stefnuljós á að gefa áður en beygt er á vegamótum.
    Þetta er ein aðalreglan um stefnuljósagjöf. Alltaf skal gefa stefnuljós áður en beygt er á vegamótum. Þar er oftast val um fleiri en eina akstursleið. Á akrein með yfirborðsmerkingu, sem vísar til beygju, skal gefa stefnuljós. Það gildir einnig þótt græn ör á ljósastýrðum gatnamótum sýni að það verði að beygja. Sumir ökumenn segja að ekki sé þörf á stefnuljósum við slíkar aðstæður vegna þess að þeir hafi aðeins um eina leið að velja, allir hljóta að sjá það. Þeir gleyma því að aðrir vegfarendur eru ekki í sömu sporum og þeir sjálfir. Þeir geta verið ungir og óreyndir, sjá e.t.v. ekki beygjuljósið né örina á akreininni og vita kannski ekki að það verði að beygja á akreininni. Einnig eru margir gangandi vegfarendur í sömu óvissu.
  • Stefnuljós á að gefa áður en skipt er um akrein.
    Öll akreinaskipti þarf að gefa til kynna með stefnuljósum, hvort sem ökumaður ætlar að færa sig inn á frárein, inn á akbraut af aðrein eða af einni akrein yfir á aðra. Þetta verður að gera enda þótt um litla breytingu á akstursstefnu sé að ræða. Á aðreinum biður ökumaður um tillitssemi með því að gefa stefnuljós inn á akrein og ber öðrum ökumönnum að virða það og sýna tillitssemi, t.d. með því að draga úr hraða eða að færa sig á vinstri akrein, þó með varúð, og gefa þannig kost á innáakstri.
  • Stefnuljós á að gefa áður en ekið er út úr hringtorgi og þegar ekið er fram hjá útkeyrslu í ytri hring.
    Engar sérreglur eru um stefnuljósanotkun í hringtorgi en ljóst er af ofangreindum reglum að gefa skal stefnuljós áður en ekið er út úr hringtorgi (þá er beygt á gatnamótum og um tvær akstursleiðir er að velja). Einnig er reglan sú að gefa stefnuljós til vinstri inn í hringtorgið þegar ekið er framhjá útkeyrslu á ytri akrein (þá er í raun ekið yfir deililínu og því skipt um akrein).
  • Stefnuljós á að gefa áður en ekið er að og frá brún akbrautar.
    Þegar ætlunin er að nema staðar við vegbrún er rétt að gefa stefnuljós áður en dregið er úr hraða og jafnvel tipla á hemlum til að gefa hemlaljós svo að þeir sem koma á eftir vari sig á hraðabreytingunni. Þetta er einkum æskilegt í hálku. Áður en ekið er af stað út í umferð frá vegkanti skal gefa það til kynna með stefnuljósum.
  • Nota skal stefnuljós til leiðbeiningar.
    Þegar ökumaður verður var við að annar vill komast framúr notar hann stefnuljós til að gefa honum til kynna að óhætt sé að hefja framúrakstur. Eins hafa ökumenn varað við framúrakstri með því að gefa stefnuljós til vinstri ef hætta leynist fram undan fyrir þann sem ætlar að aka framúr. Slíkt er þekkt meðal ökumanna stórra bíla. Sá sem ekur framúr gefur fyrst stefnuljós til vinstri í hæfilegri fjarlægð, ekur framúr, gefur stefnuljós til hægri en ekur ekki til hægri aftur fyrr en hann sér þann sem hann ók framúr í baksýnisspegli sínum. Þegar komið er að einbreiðum vegi, þar sem umferð er á móti eins og við brýr og þrengingar, skal ökumaður varast að nota stefnuljós til að gefa til kynna að hann ætli að víkja. Slíkt gæti gefið þeim sem kemur á eftir misvísandi merki um að framúrakstur sé í lagi. Þar skal frekar blikka aðalljósum til að sýna að forgangur er gefinn þeim sem á móti koma eða setja stöðuljós á ef staðnæmst hefur verið.
Bifhjól og reiðhjól
Ofangreindar reglur gilda fyrir öll ökutæki. Stefnuljósker eiga að vera á bifhjólum og léttum bifhjólum en ekki reiðhjólum. Hjólreiðafólk og aðrir á farartækjum sem ekki hafa stefnuljósker verða engu að síður að gefa stefnumerki og þá með því að rétta út hönd.
Gott er að hafa þessar viðmiðunarreglur í huga við allar aðstæður þar sem stefnuljós eru notuð:
  • Alltaf og alls staðar þarf að gefa stefnuljós þegar beygt er á vegamótum nema að það kynni að valda misskilningi. Þannig byggir ökumaðurinn upp vana.
  • Gefa stefnuljós tímanlega t.d. 5 sekúndum áður en beygt er. Styttri tími má líða ef stutt er milli gatnamóta og lengri utan þéttbýlis.
  • Tryggja að stefnuljós fari af strax eftir beygju svo ekki komi til misskilnings.
  • Stefnuljós gefa ökumanni engan forgang og leysir hann ekki undan þeirri skyldu að sýna varúð.
Stefnuljós eru tjáningar- og samskiptatæki
Oft er umferðinni líkt við almenn samskipti fólks. Ökumenn nota höfuð- og handahreyfingar, augnsamband við aðra ökumenn og gangandi vegfarendur, svipbrigði og fleira til að tjá ætlun sína eða hugsanir í umferðinni. Stefnuljós eru einn af þessum tjáningarmiðlum sem ökumenn nota til að tjá sig í umferðinni.

Fræðslumyndband - Stefnuljós

You must install the Flash Player to watch this movie online.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++