Umferðaröryggi
Börn og hjólreiðar
Hjálpardekk eru varasöm
Mörg börn fá tvíhjól löngu áður en þau hafa færni til þess að halda jafnvægi á því. Til þess að bjarga þessu eru oft sett hjálpardekk á hjólin. Á svipstundu er búið að breyta tvíhjóli í fjórhjól sem kemst ótrúlega hratt. Því hraðar sem barnið hjólar þeim mun meiri hætta er á óhöppum. Hjálpardekkin valda því að barnið á erfitt með að átta sig á breidd reiðhjólsins og fjarlægð frá gangstéttarbrún og getur barnið auðveldlega oltið út af gangstéttinni.
Hvað er æskilegt að barnið sé gamalt þegar það fær tvíhjól?
Öruggast er að gefa börnum ekki tvíhjól fyrr en eftir fimm ára aldur og sjá til þess að þau hjóli alltaf fjarri umferð. Í verslunum hér á landi eru til tvíhjól sem henta tveggja til fjögurra ára börnum. Vandamálið er að börn á þessum aldri hafa hvorki andlegan né líkamlegan þroska til þess að hjóla á tvíhjóli. Mörg börn fá tvíhjól löngu áður en þau hafa færni til þess að halda jafnvægi á því. Til þess að bjarga þessu eru oft sett hjálpardekk á hjólin. Á svipstundu er búið að breyta tvíhjóli í fjórhjól sem kemst ótrúlega hratt. Því hraðar sem barnið hjólar þeim mun meiri hætta er á óhöppum. Hjálpardekkin valda því að barnið á erfitt með að átta sig á breidd reiðhjólsins og fjarlægð frá gangstéttarbrún og getur barnið auðveldlega oltið út af gangstéttinni.
Eru til einhverjar reglur sem banna börnum að vera á reiðhjólum á veturna þegar snjór er og hálka?
Nei, það eru ekki til neinar slíkar reglur. Aftur á móti setja margir grunnskólar þær reglur að börn eigi ekki að koma á hjólum í skólann yfir háveturinn. Þar þurfa foreldrar hins vegar að vera samstíga og hjálpa til við að stuðla að öryggi barna sinna. Hjólreiðar lítilla barna eru aðeins æskilegar að sumri til og reiðhjól á að geyma inni á veturna.
Hvenær er börnum óhætt að hjóla í almennri umferð?
Meginreglan er sú að börn eiga ekki að hjóla í umferð innan um bíla fyrr en þau eru orðin ellefu til tólf ára. Þá þarf einnig að hafa í huga andlegan og líkamlegan þroska þeirra. Mikilvægt er að foreldrar brýni fyrir börnum sínum að hjóla aðeins á öruggum svæðum.
Má reiða farþega á reiðhjóli?
Það má ekki reiða aðra farþega á hjóli nema börn sem eru undir 7 ára aldri og þá er skylt að nota þar til gert sæti. Jafnframt verður hjólreiðamaðurinn að vera orðinn 15 ára.
Hvernig er endingartíma stóla sem notaðir eru til að reiða börn háttað?
Ekki eru til reglur um endingartíma slíkra stóla en mikilvægt er að fylgjast vel með breytingum í plasti stólsins, t.d. ef það hvítnar. Þegar plastið hvítnar þá gefur það til kynna að breytingar séu að eiga sér stað í plastinu og þá er vert að skipta stólnum út. Einnig er mikilvægt að fylgjast vel með böndum sem notuð eru til að festa barnið.
Hvaða búnaður á að vera á reiðhjólum?
Á þessari síðu má sjá yfirlit yfir skyldubúnað reiðhjóla í umferð. Þó að börn hjóli ekki í umferðinni ættu reiðhjól þeirra að vera búin sama öryggisbúnaði og hjól þeirra sem eldri eru. Að auki er mælt með því að settar séu appelsínugular veifur á hjól yngstu barnanna. Það auðveldar ökumönnum og öðrum vegfarendum að koma auga á þau. Enn fremur er mikilvægt að góðir hemlar séu á hjólinu bæði að framan og aftan. Gangið úr skugga um það við kaup á hjóli að það sé búið handbremsu að framan auk fótbremsunnar.
Hvaða sérstöðu hafa börn þegar hjólreiðar eru annars vegar?
Börn hafa ekki náð fullkomnu valdi á grófhreyfingum og samhæfingu vantar í hreyfingar. Enn fremur er jafnvægisskyn þeirra ekki fullþroskað og hliðarsýn takmörkuð. Reynsla þeirra af umferð er lítil og þau geta ekki skynjað hraða og fjarlægð ökutækja sem nálgast auk þess sem þau eiga erfitt með að átta sig á því úr hvaða átt hljóð kemur. Yfirsýn þeirra er takmörkuð sökum smæðar sem þýðir að þau sjá ekki yfir bíla. Síðast en ekki síst eru börn til alls líkleg og eiga það til að taka ákvarðanir í skyndi án þess að hugsa um afleiðingarnar.
Að hverju ber að hyggja þegar hjólreiðahjálmur er keyptur?
Á þessari síðu má nálgast ýmsar upplýsingar um reiðhjólahjálma.
Hjálmur er höfuðnauðsyn
Alvarlegustu áverkar á hjólreiðamönnum verða á höfði. Höfuðáverkar á börnum stafa m.a. af því að höfuð barns er hlutfallslega stórt og þungt miðað við aðra hluta líkamans. Þar við bætist að börn bera síður fyrir sig hendur en fullorðið fólk þegar þau detta.
Barnasæti á reiðhjóli
Barn sem situr í barnasæti á reiðhjóli á alltaf að vera með hjálm.
Ekki tvíhjól fyrr en eftir 5 ára aldur
Öruggast er að gefa börnum ekki tvíhjól fyrr en eftir fimm ára aldur og sjá til þess að þau hjóli alltaf fjarri umferð.
Setjið hjólin inn á haustin
Hjólreiðar lítilla barna eru aðeins æskilegar að sumri til og reiðhjól á að geyma inni yfir veturinn.



