Umferðaröryggi
Sjáumst! Endurskinsmerki eru ljós í myrkri
Nauðsynlegt og ódýrt öryggistæki
Í myrkri sjást gangandi vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða. Þessa vegna er notkun endurskinmerkja nauðsynleg. Endurskinsmerkin eiga að vera sýnileg og er best að hafa endurskinsmerkin fremst á ermum, á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum. Þá virka endurskinsmerkin eins og blikkljós þegar ljós skín á þau. Því fyrr og betur sem ökumenn greina gangandi vegfarendur þeim mun meira er öryggi þeirra síðarnefndu í umferðinni. Það er staðreynd að ökumenn sjá gangandi vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr og því getur notkun endurskinsmerka skilið milli lífs og dauða.
Ef við tökum dæmi um þrjú börn sem eru á gangi í kolsvarta myrkri. Addi er fremstur, í dökkum fötum, án allra endurskinsmerkja. Ökumaður á bíl sér hann í 26 metra fjarlægð. Birna er í ljósum fötum en ekki með endurskinsmerki og sér ökumaðurinn hana í 38 metra fjarlægð. En Dísa er með endurskinsmerki og hún sést í allt að 136 metra fjarlægð. Það þýðir að Dísa sést fimm sinnum fyrr en Addi. Þetta getur komið í veg fyrir að hún verði fyrir bíl.Endurskin fyrir alla
Allir ættu að finna endurskin við hæfi en það eru til margar gerðir og stærðir eins og endurskinsvesti, endurskinsborðar, límmerki, barmmerki eða hangandi endurskinsmerki. Á mörgum skólatöskum eru endurskinsmerki og gott er að líma endurskin á barnavagna, sleða, bakpoka og skíðastafi. Fullorðnir eiga að sjálfsögðu að vera fyrirmyndir barna og vera með endurskinsmerki á sínum flíkum.
Nauðsynlegt er fyrir skokkara að vera í endurskinsvestum eða með gott endurskin á æfingarfatnaði þegar æft er utandyra.
Endurskinsmerki er einnig hægt að líma á hunda- og kattahálsbönd og sjálfsagt er að bregða endurskinsborðum um fætur hestsins þegar farið er í reiðtúr.
Hvar fást endurskinsmerki?
Hægt er að fá endurskinsmerki í flestum apótekum, stórmörkuðum og bensínstöðvum. Þá er þeim enn fremur oft dreift af fyrirtækjum, félagasamtökum og íþróttafélögum. Líklegt er að til séu endurskinsmerki í skúffum og skápum á flestum heimilum og þá er um að gera að nota þau merki, enda gera þau lítið gagn ef þau eru ekki notuð. Nánari upplýsingar veita fræðslufulltrúar Umferðarstofu í síma 5802000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á fraedsla@us.is.
Gæði endurskinsmerkja
Miklu máli skiptir að skoða endurskinsmerkin áður en þau eru keypt en þau þurfa að vera með CE-merki, með nafni framleiðanda (eða heiti vörunnar), ennfremur þarf númer staðalsins að koma fram á merkinu (EN 13356) og að lokum eiga að fylgja með því notkunarleiðbeiningar. Markaðseftirlit með endurskinsmerkjum er í höndum Neytendastofu.



