Umferðaröryggi
Hlífðarhjálmar - að hverju ber að hyggja?
Veljið hjálm af kostgæfni. Góður hjálmur uppfyllir þessar kröfur:

Barnið með bleika hjálminn (t.v.) er með hjálminn of aftarlega. Guli hjálmurinn á hinu barninu situr hins vegar rétt.
Rétt notkun getur skipt sköpum:
- er prófaður af viðurkenndri stofnun og merktur með CE-merki
- verndar enni, hnakka, gagnaugu og koll
- passar vel, situr þétt á höfðinu, rennur ekki aftur á hnakka
- hindrar hvorki sjón né dregur úr heyrn
- er mjúkur næst höfðinu
- er léttur og með loftopum
- er með stillanlegt hökuband og spennu sem auðvelt er að opna og loka. Spennan á að vera til hliðar en ekki undir hökunni.
- er auðveldur í notkun og létt að þrífa.
Barnið með bleika hjálminn (t.v.) er með hjálminn of aftarlega. Guli hjálmurinn á hinu barninu situr hins vegar rétt.
Rétt notkun getur skipt sköpum:
- hjálmurinn skal sitja rétt, - ekki of aftarlega
- hjálmurinn skal sitja þétt svo hann hvorki detti af né skekkist þegar á reynir
- böndin eiga að vera rétt stillt. Aftara bandið skal stillt á móti fremra bandi, þannig að eyrað lendi í miðju V-forminu sem böndin mynda.
- hvorki má líma merki á hjálminn né mála hann, þá getur höggþolið minnkað
- hjálminn má aðeins hreinsa með vatni og sápu, - ekki með uppleysandi efnum, ss. þynni, bensíni o.s.frv.
- hjálminn á ekki að nota í leiktækjum.



