Umferðaröryggi
9. Endingartími öryggisbúnaðar barna
Miðað við rannsóknir á endingu plasts sem gerðar voru við Tækniháskólann í Linköping á ekki að nota öryggisbúnað lengur en í um 10 ár en tíminn ræðst einnig af því í hverju hann hefur lent. Skipta á um öryggisbúnað sem lent hefur í árekstri og alltaf á að skipta um stól með sprungum og þess háttar skemmdum óháð aldri hans. Ekki mega heldur vera skemmdir á beltum og festingum. Ungbarnavörn hefur skemmri endingartíma m.a. vegna þess að hún er meira flutt á milli og er stundum notuð utan bílsins þannig að hún verður fyrir meira hnjaski. Best er að miða við meðmæli framleiðandans en endingartíminn getur verið 5-7 ár.
Á nýjum viðurkenndum vörum á framleiðsludagurinn sjást, annað hvort greyptur í, stimplaður á eða á límmiða.
Notaður öryggisbúnaður
Mælt er með því að sá sem kaupir notaðan stól taki áklæðið af og skoði hann. Á viðurkenndum stólum á framleiðsludagurinn að sjást, yfirleitt á límmiða eða stimplaður neðan á stólinn. Dagsetninguna getur vantað á sumar eldri tegundir þar sem merkingin var ekki skylda frá upphafi. Engin ákveðin mörk eru til sem segja hvenær stóll er orðinn gamall en góð þumalputtaregla er að nota ekki mjög slitinn stól og sérstaklega ef plastgrindin virðist tærð.
Við kaup á notuðum stól er mikilvægt að fá með notkunarleiðbeiningar og öll belti.
Ráð NTF til þeirra sem kaupa notað:
- gangið úr skugga um að stóllinn sé heill; takið áklæðið af og leitið að sprungum o.þ.h., spyrjið hvort stóllinn hafi lent í árekstri eða öðru óhappi; henda á stól sem lent hefur í árekstri
- kannið aldur stólsins; mælt er með því að barnabílstóll sé ekki notaður í meira en 10 ár að því tilskildu að vel sé farið með hann og að hann hafi ekki lent í árekstri; stóllinn ætti helst ekki að vera meira en 5 ára þegar þú kaupir hann til að þú getir notað hann sem lengst
- hafið samband við framleiðanda eða söluaðila ef notkunarleiðbeiningar eða einhvern íhlut vantar
- kaupið aðeins af einhverjum sem þið þekkið og treystið; ef þið eruð óviss kaupið þá frekar nýtt.