Umferðaröryggi
Umferðarskóli fyrir 5 og 6 ára börn

Á hverju vori starfrækir Umferðarstofa, lögreglan og sveitarfélögin umferðarskóla fyrir fimm og sex ára börn. Umferðaskólinn kemur í leiksskólanna til barnanna og sjá lögregluþjónar og leikskólakennarar um að fræða börnin um umferðina og hvernig eigi að hegða sér í henni. Meðal annars er fjallað um öryggi barna í bílum, hvernig eigi að fara yfir götu, hvar öruggast sé að hjóla og leika sér og hvers vegna það er mikilvægt að nota hjólreiðahjálm. Í lokin er sýnd mynd sem Felix Bergsson vann sérstaklega fyrir umferðarskólann og heitir hún Felix finnur dýrin.
Það er alltaf líf og fjör í umferðarskólanum!



