Umferðaröryggi
Markmið
Leggja þarf áherslu á reglur sem gilda um umferð og að gæta varúðar á götum. Börn þurfa að kynnast umferðinni og læra hegðunar- og umferðarreglur jafnskjótt og þau hafa þroska til. Þetta á að stuðla að auknu öryggi þeirra og réttum viðbrögðum í umferðinni (Aðalnámskrá leikskóla, menntamálaráðuneyti, 1999)Það næst með því:
- að börnin viti hvaða hættur fylgja umferðinni,
- að börnin viti að þau mega ekki vera á akbrautum nema undir eftirliti fullorðinna,
- að börn eiga aldrei að setjast upp í bíl án þess að nota góðan öryggisbúnað,
- að foreldrar hafi vitneskju um hæfni barna og takmarkanir til að taka þátt í umferðinni
Umferðarfræðsla í leikskólum
Leikskólinn er fyrsta skólastig barnsins. Markmið umferðarfræðslu í leikskólum er að börnin kynnist umferðinni og læri umferðarreglur jafnskjótt og þau hafa þroska til. Í leik, daglegu starfi og gönguferðum er lögð áhersla á mikilvægi umferðarmenningar í samskiptum manna. Leitast er við að auka skilning barnanna á atriðum sem varða öryggi þeirra í umferð og þau hvött til að nota þann öryggisbúnað sem til er. Hjá Umferðarráði er hægt að fá sérstök umferðarverkefni fyrir leikskólabörn og starfsfólki leikskóla gefst kostur á ýmsu fræðsluefni fyrir börn og foreldra.Lesa meira...
Áhugasamur nemandi í umferðarskólanum Ungum vegfarendum.

Öll börn á Íslandi fá fjölbreytt fræðsluefni frá umferðarskólanum Ungum vegfarendum sent heim til sín. Fyrstu sendinguna fá þau þegar þau eru þriggja ára og þá síðustu þegar þau eru sex.
Námsefni umferðarskólans Ungir vegfarendur
Fræðsluefni Umferðarskólans Ungir vegfarendur er mjög fjölbreytt. Svo læra börn sem fyrir þeim er haft. Börnin okkar taka betur eftir því sem við GERUM en því sem við SEGJUM. Þess vegna er mikilvægt að fullorðna fólkið sé ávallt til fyrirmyndar í umferðinni.
Lesa meira...

Umferðarskóli fyrir 5 og 6 ára börn
Á hverju vori starfrækir Umferðarstofa, lögreglan og sveitarfélögin umferðarskóla fyrir fimm og sex ára börn. Námskeið eru haldin á höfuðborgarsvæðinu og víðar og eru þau vel sótt af yngstu vegfarendunum og foreldrum þeirra.



