Umferðaröryggi
Umferðarútvarpið

Hjá Umferðarstofu er starfrækt fréttastofa sem miðlar upplýsingum og fréttum af umferð til vegfarenda í gegnum útsendingar allra helstu útvarpsstöðva landsins. Auk þess birtast fréttirnar jafnóðum í umferðarfréttum á heimasíðu Umferðarstofu.
Umferðarútvarpið er miðstöð nýjustu upplýsinga um umferðina og umferðaröryggismál fyrir landið allt. Markmiðið er að flytja ætíð hnitmiðaðar fréttir fyrir vegfarendur sem jafnframt eru upplýsandi, leiðbeinandi og fræðandi. Umsjónarmenn umferðarfrétta Umferðarstofu eru Einar Magnús Magnússon, Kristín Björg Þorsteinsdóttir, Karin Erna Elmarsdóttir, Þóra Magnea Magnúsdóttir og Sigurður Helgason. Hægt er að senda fréttir eða ábendingar á umferðarútvarpið á utvarp@us.is eða í síma 580-2010.



