Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Skýrslur um umferðaröryggismál

Road Safety is No Accident

Afbrot í umferðinni - eðli og umfang umferðarlagabrota

Í tilefni af alþjóðaheilbrigðisdeginum í ár hefur samstarfshópur opinberra aðila, fyrirtækja og félagasamtaka tekið saman skýrsluna Afbrot í umferðinni. Í henni er kastljósinu beint að afbrotamanninum í umferðinni og afleiðingum afbrotanna, hvort heldur er fyrir einstaklinginn eða samfélagið sem heild. Þetta efni er alls ekki valið af handahófi enda benda rannsóknir til þess að að flest alvarleg slys og banaslys í umferðinni verði vegna einhvers konar brota á umferðarlögum. Vonast er til að skýrslan gefi heildstæða og raunsanna mynd af eðli og umfangi umferðarlagabrota og afleiðingum þeirra fyrir íslenskt samfélag. Ennfremur er vonast til að að skýrslan veki ökumenn til umhugsunar um hversu löghlýðnir þeir eru í umferðinni.

Einar Jónsson hjá Umferðarstofu tók skýrsluna saman en hún byggir á fjölda annarra skýrslna, kannana og rannsókna sem gerðar hafa verið á undanförnum árum. Hægt er að nálgast skýrsluna í heild sinni hér að neðan.

Hér má nálgast ræðu Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra sem flutt var í tilefni alþjóðaheilbrigðisdagsins 7. apríl 2004. 


Umferðarfræðsla í grunnskólum

Útdráttur úr skýrslu Benedikts Sigurðarsonar um umferðarfræðslu í grunnskólum og ferðahætti grunnskólabarna.


Gagn og gaman - mat á umferðarfræðslu barna á leikskólastigi

Gagnoggaman.jpgSkýrsla unnin af Valdimar Briem, Maríu Finnsdóttur og Margréti Sæmundsdóttur í desember 2003. Í skýrslunni er annars vegar lagt mat á árangur umferðarfræðslu barna á leikskólaaldri og hins vegar kannaðar umsagnir foreldra um slys og áhættutöku barna, atferli og afbrigðilega hegðun sem tengst getur slysum.


Fleiri skýrslur um umferðaröryggismál



Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++