Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Umferðarpistlar

Umferdarutvarp copy.jpgHér er að finna pistla umferðaröryggissviðs Umferðarstofu sem fluttir eru í útvarpsþættinum Samfélaginu í nærmynd á Rás 1 á hverjum mánudegi laust upp úr kl. 11. Meginmarkmið pistlanna er að vekja almenning til umhugsunar um umferðina og gefa honum góð ráð og ábendingar. Í þeim er fjallað um umferðina og umferðaröryggismál í víðu samhengi og ræðst umfjöllunarefnið gjarnan af árstíðinni og/eða því sem er efst á baugi í þessum málaflokki hverju sinni.  Eldri pistla er að finna neðst á síðunni.

mánudagur 9. ágúst 2004 kl. 12:39

Framúrakstur við fráleitar aðstæður

Enn ein umferðarhelgin er yfirstaðin og víða um land var mikil umferð, ekki síst á Norðurlandi. Það er vel við hæfi að nota tækifærið eftir að hafa verið á ferðinni að lýsa upplifun sinni af umferðinni um þessa helgi. Óhætt er að fullyrða að langflestir ökumenn fá ágætiseinkunn fyrir akstursmáta sinn og framgöngu á þjóðvegunum. Flestir óku á jöfnum og mjög góðum hraða, þannig að á köflum var aksturinn mjög þægilegur og áreynslulítill. En það átti því miður ekki við um alla.
Lesa meira...

þriðjudagur 3. ágúst 2004 kl. 12:51

Enn ein verslunarmannahelgin liðin

Enn ein verslunarmannahelgin er liðin. Ekki vorum við alveg laus við alvarleg slys, en eins og fram hefur komið í fréttum slösuðust tveir alvarlega í hörðum árekstri á Suðurlandsvegi síðdegis í gær. Við getum því miður ekki búist við að vera alveg laus við umferðaróhöpp þegar jafn margt fólk er á ferð á vegum landsins eins og raun ber vitni um verslunarmannahelgar og raunar einnig um allar helgar í júlí.
Lesa meira...

mánudagur 26. júlí 2004 kl. 11:55

Erlendir ökumenn á íslenskum vegum

Á hverju sumri skapast umræður um tíð slys í umferðinni þar sem erlendir ökumenn koma við sögu. Að undanförnu hafa tvö slys orðið, annars vegar banaslys á Vatnsnesvegi í síðustu viku og hins vegar varð slys á Krísuvíkurvegi á laugardagskvöld, þar sem maður slasaðist lífshættulega. Útafakstrar eru algengasta orsök þessara slysa. Þau eiga sér stað bæði á vegum með bundnu slitlagi og sömuleiðis á malarvegum. Ótrúlega mörg slys verða á sömu vegunum, vegum þar sem margir ferðamenn eiga erindi og þar sem aðstæður eru ekki upp á það besta.
Lesa meira...

mánudagur 19. júlí 2004 kl. 19:52

Ef komið er að slysi

Meginmarkmiðið með forvörnum á sviði umferðarmála er að koma í veg fyrir slys með öllum tiltækum ráðum. Verði hins vegar slys eða óhapp beinist athyglin að því að koma í veg fyrir að afleiðingar þess verði alvarlegri en efni standa til. Þá geta viðbrögð á slysstað skipt miklu máli.
Lesa meira...

mánudagur 12. júlí 2004 kl. 13:31

Hægðu á þér

,,Hægðu á þér" er yfirskrift auglýsinga sem Umferðarstofa hefur látið gera. Um er að ræða sjónvarpsauglýsingu, útvarpsauglýsingar, dagblaðaauglýsingar og auglýsingar til birtingar á strætisvagnaskýlum. Áhersluatriði auglýsinganna er ökuhraði og er það ekki að ástæðulausu, þar sem of mikill hraði er meðal helstu orsakavalda banaslysa og annarra alvarlegra slysa í umferðinni hér á landi.
Lesa meira...

mánudagur 5. júlí 2004 kl. 13:46

Augnabliksmistök geta ráðið úrslitum

Þeir sem starfa að umferðaröryggismálum eru yfirleitt frekar kvíðnir fyrir helgar í júlímánuði og fyrri hluta ágúst. Ástæðan er ótti við að alvarleg slys eigi sér stað. Fyrsta helgin í júlí hefur á undanförnum árum orðið sífellt meiri ferðahelgi og var nýliðin helgi engin undantekning frá því.
Lesa meira...

mánudagur 28. júní 2004 kl. 13:38

Merkingar við vinnusvæði

Sumarið er tími verklegra framkvæmda. Þá eru gerðar lagfæringar á vegum, götur fræstar og malbikaðar og allt hefur þetta talsverð áhrif á umferðina. Undir slíkum kringumstæðum skipta merkingar við framkvæmdir miklu máli. Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafa samið reglur um merkingar og þeir aðilar sem hafa eftirlit með framkvæmdum eiga meðal annars að fylgjast með ástandi þeirra.
Lesa meira...

mánudagur 21. júní 2004 kl. 13:49

Komum heil úr fríinu

Samkvæmt fréttum virðist sumarumferðin á þjóðvegum landsins hafa farið í fullan gang um nýliðna helgi. Nokkur óhöpp áttu sér stað, en ekki hafa borist fregnir af neinum alvarlegum slysum. Á þessum tíma ársins er meiri ástæða til að halda fullri athygli við akstur en endranær. Sé fjöldi banaslysa í júní, júlí og ágúst á undanförnum tveimur árum skoðaður, kemur í ljós að tíðni þeirra er langt umfram aðra árstíma.
Lesa meira...

mánudagur 14. júní 2004 kl. 14:37

Tillögur að bættu umferðaröryggi bifhjólafólks

Fjöldi bifhjólaslysa að undanförnu - þar af tvö banaslys - hefur beint kastljósinu að umferðaröryggismálum bifhjólafólks. Bifhjólasamtök lýðveldisins Sniglarnir og fleiri aðilar hafa í gegnum tíðina unnið ötullega að fræðslu og áróðri í því skyni að fækka slysum og óhöppum þar sem bifhjólafólk kemur við sögu. Þetta starf hefur skilað sér í mikilli fækkun bifhjólaslysa þrátt fyrir fjölgun bifhjóla og skráðra hjóladaga. Sem dæmi má nefna að árið 1992 voru skráð slys þar sem bifhjól komu við sögu 112 en árið 2000 var tala þeirra komin niður í 61.
Lesa meira...

mánudagur 7. júní 2004 kl. 12:53

Umferðarskólinn hefur starfsemi

Á morgun hefst starf umferðarskólans af fullum krafti á höfuðborgarsvæðinu. Umferðarskólinn er ætlaður börnum sem fædd eru árin 1998 og 1999 og hefur öllum börnum á þessum aldri og foreldrum þeirra verið boðið í skólann. Enn fremur verður tímatafla skólans birt á heimasíðu Umferðarstofu sem er us.is. Í umferðarskólanum sjá leikskólakennarar og lögregluþjónar um að fræða börnin um umferðina og hvernig eigi að hegða sér í henni. Meðal annars er fjallað um öryggi barna í bílum, hvernig eigi að fara yfir götu, hvar öruggast sé að hjóla og hvers vegna það er mikilvægt að nota hjólreiðahjálm. Í lokin er sýnt myndbandið ,,Grallarar og galdrasteinar? sem fjallar um víkinginn Víðförul og hvernig honum gengur að fóta sig í umferðinni.
Lesa meira...

þriðjudagur 1. júní 2004 kl. 08:26

Hvert ertu að fara?

Enginn vafi leikur á að algengasta umkvörtunarefni fólks varðandi umferðina er hversu erfitt reynist að fá ökumenn til að nota stefnuljós í akstri. Stefnuljósin eru samskipta- og upplýsingakerfi manna á milli og greiða fyrir umferð og gera hana öruggari.
Lesa meira...

mánudagur 24. maí 2004 kl. 13:09

Gildi slysaskráningar og rannsókna

Eitt af verkefnum Umferðarstofu, samkvæmt umferðarlögum er að annast skráningu umferðarslysa á Íslandi. Öll umferðaróhöpp og slys sem lögregla gerir skýrslur um eru skráð samkvæmt ákveðnu kerfi. Markmiðið með skráningunni er að hafa ávallt til reiðu upplýsingar um fjölda slysa, eðli þeirra, orsakir og afleiðingar.
Lesa meira...

mánudagur 17. maí 2004 kl. 13:50

Hraðinn skiptir máli

Ökuhraði er eitt af grundvallaratriðum í umferðaröryggismálum. Sé of hratt ekið eykst slysahætta mjög mikið. Stundum er reyndar sagt að best sé að allir aki á svipuðum hraða og að þeir sem aki hraðast og hægast skapi mesta hættu. Það má til sanns vegar færa. Hins vegar skiptir miklu að auka vitneskju og þekkingu alls almennings á hraðareglum og því hversu mikil hætta felst í hraðakstri.
Lesa meira...

mánudagur 10. maí 2004 kl. 14:57

Áreiti í umferðinni

Þegar við veltum fyrir okkur orsökum umferðarslysa og óhappa beinist athyglin fyrst og fremst að mannlega þættinum. Þar er átt við hegðun og viðbrögð ökumanna í flestum tilfellum. Segja má að orsakirnar séu annars vegar það að menn brjóta umferðarlög, meðvitað eða ómeðvitað. Það er kannski ekki algengt að menn taki um það ákvörðun að þeir ætli sér að aka hraðar en lög leyfa eða að menn spenni ekki bílbelti af ásettu ráði. Frekar er það einhverskonar gleymska eða þá að menn séu ekki með fulla athygli við það sem þeir eru að gera.
Lesa meira...

mánudagur 3. maí 2004 kl. 09:17

Víða pottur brotinn

Þegar sólin fer að hækka á lofti verðum við sífellt meira vör við börn úti við. Hjólreiðar eru holl iðja og full ástæða til að hvetja til þeirra. Það sem mestu máli skiptir varðandi börn og hjólreiðar er að þau séu ekki á hjólum á akbrautum þar sem hraði er mikill. Umferðarlög leyfa hjólreiðar á gangstéttum með þeim fyrirvara að fullt tillit sé tekið til þeirra sem eru gangandi. Stundum fara þeir fullgeist og þá eru þeir sem eru gangandi í talsverðri hættu. Hjólreiðamaðurinn er í þeim tilfellum sá sem valdið getur hættu og slysum.
Lesa meira...

mánudagur 26. apríl 2004 kl. 15:00

Frágangur farms

Því miður gerist það alltof oft að menn verða varir við að illa er gengið frá farmi á stórum bílum. Meðal þess sem alltof oft gerist er að grjót sem dottið hefur af bílpalli liggi á akbraut. Stundum eru það steinar sem gætu valdið verulegu tjóni og slysum ef þeir lentu til dæmis á framrúðu bíls eða á gangandi vegfaranda. Slíkt gæti valdið miklu tjóni og í versta falli alvarlegum meiðslum.
Lesa meira...

mánudagur 19. apríl 2004 kl. 12:59

Árásarhneigð í umferðinni

Stundum er sagt að menn geti séð hvaða mann samferðarfólkið hefur að geyma á aksturslagi þeirra. Segja má að persónuleiki fólks endurspeglist í aksturslaginu. Góðu heilli eru margir ökumenn kurteisir og tillitssamir. Þeir átta sig á þeirri staðreynd að þeir komast ekkert fyrr á áfangastað með því að troðast áfram, með framúrakstri eða með öðrum hætti. Hins vegar eru til ökumenn sem eru árásargjarnir og ógna samferðarfólkinu með aksturslagi sínu.
Lesa meira...

þriðjudagur 13. apríl 2004 kl. 08:39

Viðhorf ökumanna til umferðarlagabrota

Eins og margoft hefur komið fram var alþjóðaheilbrigðisdagurinn síðastliðinn miðvikudag og var hann helgaður umferðaröryggi. Starfshópur sem á þriðja tug aðila sem með einum eða öðrum hætti tengjast umferðaröryggismálum tóku höndum saman og birtar voru opnuauglýsingar í dagblöðum. Markmið þeirra er að vekja athygli á þeirri staðreynd að umferðarlagabrot eru afbrot. Afbrot sem gætu og hefðu margoft haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.
Lesa meira...

mánudagur 5. apríl 2004 kl. 14:42

Alþjóðlegi heilbrigðisdagurinn tileinkaður umferðaröryggi

Við réttarrannsókn eftir fyrsta banaslysið sem varð í umferðinni árið 1896 var haft eftir dánardómstjóranum: ,,Þetta má ekki gerast oftar!? Núna þegar rúmlega ein öld er liðin láta 1200 þúsund manns lífið í umferðarslysum í heiminum ár hvert. Dag hvern deyja tæplega 3300 manns í umferðinni. Um 50 milljónir manna slasast í umferðinni á ári. Lengi vel var alþjóðasamfélagið ekkert sérstaklega vakandi fyrir þessum vanda og fyrir bragðið hefur hann aukist á síðari árum, einkum í þróunarlöndum í Afríku og Asíu. Ef svo fer fram sem horfir og ekkert verður að gert, má ætla að slysum fjölgi um meira en 60% fyrir árið 2020.
Lesa meira...

mánudagur 29. mars 2004 kl. 13:11

Virðum rétt fatlaðra

Því miður er sú raunin, að alltof margt fólk í okkar samfélagi virðist ekki sjá ástæðu til að sýna þeim sem af einhverjum ástæðum eiga erfitt með að komast leiðar sinnar og reka erindi sín, þá sjálfsögðu mannasiði að taka tillit til þeirra og gera þeim auðveldara að komast leiðar sinnar. Þar er auðvitað átt við fatlaða, sem eiga meira undir bílnum komið en flestir aðrir. Fyrirtæki og stofnanir hafa komið til móts við þá með því að sérmerkja bílastæði og þeir sem hafa heimild til eiga einir að nota slík stæði.
Lesa meira...

mánudagur 22. mars 2004 kl. 15:03

Hópferðir og umferðaröryggi

Hörmulegt slys, sem varð í Finnlandi í síðustu viku hlýtur að vekja alla þá sem hafa minnsta áhuga á umferðarmálum til umhugsunar. 24 létust í þessu slysi, flest unglingar innan við tvítugsaldur. Hópbifreið lenti í árekstri við stóran flutningabíl með þessum afleiðingum. Fjöldi þeirra sem létust í þessu eina slysi er sá fjöldi sem látist hefur í umferðinni hér á landi að jafnaði ár hvert undanfarna áratugi.
Lesa meira...

mánudagur 15. mars 2004 kl. 13:25

Umferðarmannvirki á höfuðborgarsvæðinu

Á undanförnum vikum hafa verið miklar umræður um mikilvæg umferðarmannvirki, meðal annars hér á höfuðborgarsvæðinu. Sundabraut er hluti af þeirri umræðu og vissulega mun hún skipta miklu máli fyrir Reykvíkinga og aðra landsmenn. Hún mun stytta ferðir fólks milli landshluta og verða nýr valkostur og koma til viðbótar við Vesturlands-veg, sem hefur verið eina leið þeirra sem komið hafa til Reykjavíkur af Vesturlandi og Norðurlandi.
Lesa meira...

mánudagur 8. mars 2004 kl. 09:49

Aftanákeyrslur og bil á milli bíla

Næst algengustu umferðaróhöpp hér á landi eru aftanákeyrslur. Þær eru ekki aðeins margar, heldur hafa þær oft slys á ökumönnum og farþegum í för með sér. Þessi slys virðast valda minni háttar óþægindum til að byrja með, en þegar frá líður geta þau leitt af sér óbærilega líðan um margra ára skeið.
Lesa meira...

mánudagur 1. mars 2004 kl. 13:45

140 sentimetrar

Á miðvikudaginn var horfði ég eins og alla aðra miðvikudaga á Bráðavaktina í Sjónvarpinu. Þátturinn var eins og venjulega hlaðinn spennu og hin ótrúlegustu vandamál komu inn á hinn mjög svo fjársvelta sýsluspítala í Chicago. Einn atburður í þættinum sló mig óvenjulega mikið. Þarna var komið inn með átta ára stúlku, að ég held, og hafði hún lent í bílslysi. Stúlkan var greinilega mikið slösuð, en amma hennar sem hafði ekið bílnum virtist óslösuð. Síðan kom skýringin. Stúlkan litla hafði setið í framsæti bifreiðarinnar með beltið spennt, en fyrir framan uppblásanlegan öryggispúða. Síðan hafði amman lent í árekstri og púðarnir þanist út.
Lesa meira...

mánudagur 23. febrúar 2004 kl. 11:43

Gildi aksturskennslusvæða

Síðastliðinn föstudag stóð Ökukennarafélag Íslands fyirr ráðstefnu, þar sem fjallað var um gildi aksturskennslusvæða fyrir ökukennslu. Þar lýstu fulltrúar frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hvernig þeir standa að kennslu á slíkum svæðum. Um nokkurra áratuga skeið hefur átt sér stað umræða um mikilvægi þess að koma slíku svæði á stofn hér á landi, en ýmislegt hefur komið í veg fyrir að það hafi gerst.
Lesa meira...

mánudagur 16. febrúar 2004 kl. 13:14

Gleymum ekki börnunum

Umferðaröryggi barna er sígilt umræðuefni og ástæða til að fjalla um það með reglulegu millibili. Segja má að það sé tvískipt. Annars vegar þarf að huga að öryggi barna sem eru farþegar í bílum og hins vegar að öryggi þeirra sem gangandi vegfarendur, með eða án fullorðinna.
Lesa meira...

mánudagur 9. febrúar 2004 kl. 14:01

Akstur við vetraraðstæður

Eftir tiltölulega milda vetur á undanförnum árum höfum við á undanförnum vikum fengið að kynnast hörðum vetrarveðrum. Það er eins og það komi fólki í opna skjöldu að mikið snjói á Íslandi, enda lenda margir í vandræðum við að komast á milli staða þegar eitthvað er að veðri.
Lesa meira...

mánudagur 2. febrúar 2004 kl. 10:47

Auka þarf notkun endurskinsmerkja

Enda þótt skammdegið sé á undanhaldi liggur ljóst fyrir að enn er dimmt fyrst á morgnana og að birtu bregður síðdegis. Það beinir athygli okkar að öryggi gangandi vegfarenda í skammdeginu og mikilvægi þess að þeir séu vel sýnilegir og njóti nauðsynlegs öryggis.
Lesa meira...

mánudagur 26. janúar 2004 kl. 10:40

Umferðarstofa undir samgönguráðuneyti

Um síðustu áramót var sú breyting gerð á skipan umferðarmála hér á landi, að umsjón málaflokksins var færð frá dómsmálaráðuneyti til samgönguráðuneytis. Þessi mál hafa alla tíð heyrt undir dómsmálaráðuneyti, þannig að þarna er um að ræða talsverða breytingu.
Lesa meira...

mánudagur 19. janúar 2004 kl. 13:25

Enn af lyfjum og umferðaröryggi

Margt fólk þarf að taka inn lyf reglulega vegna margvíslegra sjúkdóma. Mörg lyf skerða verulega hæfni manna til að aka bifreið og eru þau oftast merkt með rauðum þríhyrningi, sem er alþjóðlegt tákn. Þó er það ekki einhlítt, því að sum lyf eru ekki merkt og í þeim tilfellum ber lækni skylda til að vekja athygli sjúklings á því.
Lesa meira...

mánudagur 12. janúar 2004 kl. 10:51

Lög um farsímanotkun ekki virt

Núna eru liðin rúmlega tvö ár frá því að bann við að tala í farsíma án handfrjáls búnaðar gekk í gildi. Ári síðar, eða 1. nóvember 2002 var síðan bætt við viðurlögum, sekt við því að aka bíl og tala í farsíma. Því miður er langur vegur frá því að íslenskir ökumenn virði þessi lög, því að dag hvern verða menn varir við fjölda ökumanna sem brjóta þau.
Lesa meira...

mánudagur 5. janúar 2004 kl. 13:15

Banaslys á nýliðnu ári

Um áramót líta menn gjarnan til baka yfir liðið ár og velta fyrir sér hvernig mál hafa þróast. Fyrir helgina voru birtar bráðabirgðatölur um fjölda látinna í umferðarslysum hér á landi á síðasta ári.
Lesa meira...



Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++