Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

fimmtudagur 9. febrúar 2012 kl. 16:57

Mikið um bílveltur í dag

Töluvert hefur verið um bílveltur í dag samkvæmt upplýsingum frá Neyðarlínunni. Sem betur fer hafa ekki orðið alvarleg slys á fólki en Umferðarstofa vill hvetja ökumenn til að fara varlega því víða er hálka eða hálkublettir og bleyta á vegum.

fimmtudagur 9. febrúar 2012 kl. 13:40

Víða þungatakmarkanir á vegum

Það eru þungatakmarkanir víða á vegum landsins og eru rekstraraðilar stórra bíla og bílstjórar hvattir til að kynna sér það nánar á heimasíðu Vegagerðarinnar. Hér má sjá kort sem sýnir hvar þungatakmarkanir eru í gildi hverju sinni.

fimmtudagur 9. febrúar 2012 kl. 06:46

Of hratt ekið við grunnskóla

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur miklar áhyggjur af hraða umferðar í kringum grunnskóla borgarinnar. Hraðinn virðist hafa aukist eftir að götur urðu auðar. Foreldrar eru hvattir til að ganga með börnum sínum í skólann og minnka þannig umferð í kringum skólana. Lögreglan er með sérstakt eftirlit við skóla borgarinnar þessa dagana.

fimmtudagur 9. febrúar 2012 kl. 06:44

Hratt ekið á Reykjanesbrautinni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var við hraðamælingar við Reykjanesbrautina í Garðabæ í gær og því miður eru allt of margir ökumenn sem aka langt yfir hámarkshraða. Á þeim tíma sem lögreglan var við mælingar voru yfir 20 ökumenn sem óku á yfir 100 km. hraða og sá sem hraðast ók var á 120 km hraða. Sá má eiga von á að fá 60 þúsund króna sekt og 2 punkta í ökuferilsskrána. Hámarkshraðinn á mælingastað er 80 km á klukkustund. Lögreglan verður áfram við hraðamælingar víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu næstu daga.

fimmtudagur 9. febrúar 2012 kl. 06:35

Hlaupandi skuggaverur

Það er töluvert um það að menn skokki meðfram götum og vegum dökkklæddir og án allra endurskinsmerkja. Umferðarstofa vill minna á nauðsyn þess að endurskin séu notuð sérstaklega snemma morguns og eftir að skyggja tekur á kvöldin.

fimmtudagur 9. febrúar 2012 kl. 06:34

Sérstakt eftirlit lögreglu í febrúar

Nú í febrúar leggur umferðardeild lögreglu höfuðborgarsvæðisins sérstaka áherslu á eftirlit með skoðun ökutækja og því hvort búið sé að greiða ábyrgðatryggingar af ökutækjum. Einnig mun lögregla leggja sérstaka áherslu á eftirlit með notkun farsíma án handfrjálsbúnaðar við akstur.

Eigendum ökutækja er skylt að vera með ábyrgðatryggingu. Ef eigandi ökutækis greiðir ekki iðgjald ábyrgðatryggingar á hann yfir höfði sér endurkröfu um það tjón sem hann veldur með ökutækinu. Slík tjón geta oft á tíðum verið mjög kostnaðarsöm og það borgar sig þ.a.l. ekki að taka neina áhættu í þeim efnum. Það er því allra hagur að þess sé gætt að ábyrgðatryggingar séu fullgildar.

fimmtudagur 9. febrúar 2012 kl. 06:30

Virða skal rétt gangandi á gulu blikkandi ljósi

Umferðarstofu hafa borist ábendingar frá gangandi vegfarendum um að einstaka ökumenn virði ekki þann rétt sem gangandi hafa þegar gengið er á gulu blikkandi ljósi yfir ljósastýrða gangbraut. Þegar rautt ljós sem skín á bílaumferð breytist í gult má ekki aka af stað fyrr en tryggt er að gangandi séu komnir yfir akbrautina. Svo virðist sem ökumenn virði þetta ekki sem skyldi.

fimmtudagur 9. febrúar 2012 kl. 06:29

Handfrjáls búnaður ódýrari en sektin

Það er ástæða til að minna þá ökumenn sem tala í síma á meðan á akstri stendur að í flestum tilfellum kostar handfrjáls búnaður minna en sektin sem að er við því að nota slíkan búnað ekki. Best er þó að sleppa því að tala í síma á meðan á akstri stendur og beina athyglinni að akstrinum. Nú í febrúar leggur umferðardeild lögreglu höfuðborgarsvæðisins m.a. sérstaka áherslu á eftirlit með notkun farsíma án handfrjálsbúnaðar við akstur.

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++