Ökutækjaskráningar
Pöntun einkamerkja
Hægt er að sækja um einkamerki á bifhjól og allar bifreiðar nema VSK-bifreiðar og námubifreiðar. Umsækjandi þarf að fylla út viðeigandi eyðublað.Eigandi, meðeigandi og umráðamaður ökutækis geta sótt um einkamerki á ökutæki. Bifreiðaumboð getur sótt um einkamerki á ökutæki sem er á forskrá fyrir hönd tilvonandi eiganda (umráðamanns) og verður nafn viðkomandi rétthafa að koma fram á umsókn. Hver sem er getur keypt gjafabréf fyrir einkamerki en tilvonandi rétthafi (gjafþegi) verður að vera skráður eigandi eða umráðamaður þess ökutækis sem merkin eiga að fara á.
Gjafamerki
Boðið er upp á þann möguleika að færa einkamerki að gjöf. Umsækjandi sækir um og greiðir fyrir einkamerki fyrir hönd gjafþega. Gjafþegi verður að vera skráður eigandi þess ökutækis sem merkin eiga að fara á. Umsækjandi fær afhent gjafabréf með umbeðinni áletrun eða hann fær einkamerkin afhent gegn yfirlýsingu um að eldri skráningarmerkjum ökutækisins verði skilað inn til SKS næsta virka dag. Gjafþegi fær einkamerkin afhent gegn framvísun gjafabréfsins.Ef gjafþegi vill ekki þiggja framleidd einkamerki er heimilt að panta ný einkamerki á kostnað US með þeirri áletrun er hann óskar. Framleiddum einkamerkjum er þá fargað og pöntun þeirra eytt. Ný pöntun er svo afgreidd með hefðbundnum hætti og fyrri áletrun er laus til úthlutunar á ný.



