Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Ökutækjaskráningar

föstudagur 3. desember 2010 kl. 15:17

Strangari kröfur um útblástur ökutækja

1. janúar 2011 breyttust mengunarkröfur fyrir nýja fólksbíla (M1) og sendibíla (N1 í flokki 1) sem skráðir verða hér á landi og innan evrópska efnahagssvæðisins. Við þessa breytingu munu leyfilegt gildi mengandi efna í útblæstri þessara ökutækja vera minna en verið hefur. Áður var miðað við svonefndan euro 4 staðal en 1. janúar 2011 var hann færður upp í euro 5. Eins og sjá má í listanum hér að neðan þá munu sendibílar í flokki 2 og 3 þurfa að uppfylla euro 5 staðalinn ári síðar þ.e. frá og með 1. Jan 2012.

Sendibílar flokkast í eftirfarandi þrjá flokka:

  • Flokkur 1.  Eiginþyngd + 100 kg; jafnt og eða minna en 1305 kg (þarf að uppfylla euro 5 staðalinn frá og með 1. Jan 2011)
  • Flokkur 2. Eiginþyngd + 100 kg; frá 1306 kg til og með 1760 kg (þarf að uppfylla euro 5 staðalinn frá og með 1. Jan 2012)
  • Flokkur 3. Eiginþyngd + 100 kg; meiri en 1760 kg (þarf að uppfylla euro 5 staðalinn frá og með 1. Jan 2012)

Með tilkomu svonefndra euro staðla sem byrjað var að nota 1992 í Evrópu við skráningu ökutækja af öllum stærðum var farið að stemma stigu við mengandi efnum í útblæstri frá ökutækjum. Á undanförnum árum hefur átt sér stað mikil þróun hjá bílaframleiðendum til minnkunar mengandi efnum í útblæstri auk þess sem nýting eldsneytis er mun betri. Framleiðendur eiga nú þegar að hafa hafið framleiðslu ökutækja samkvæmt nýja staðlinum, euro 5, og því eiga innflytjendur ökutækja sem framleidd eru fyrir evrópska efnahagssvæðið að vera öruggir með að fyrrgreindir bílarnir (M1 og N1-flokki 1) uppfylli þessa staðla.

Ef verið er að flytja inn fólks- og sendibíla annar staðar frá skal þess gætt að þeir uppfylli euro 5 staðalinn. Innflytjandi þarf að gæta þess að ef ekki kemur fram á upprunavottorði að bíllinn standist settar kröfur þarf innflytjandi að útvega þær.

Í tilskipun 715/2007 má sjá áætlaðar breytingar fyrir euro 5 og 6. Á  bls. 12 eru góðar töflur fyrir euro 5 og á bls. 13 fyrir euro 6.

Þess skal getið að PI (Positive igition) táknar rafkveikju sem eru bensínhreyflar og CI (Compression ignition) táknar þjöppukveikju sem eru díselhreyflar

fimmtudagur 29. október 2009 kl. 14:56

Ný umferðarlög

Drög að frumvarpi til nýrra umferðarlaga eru nú til umsagnar öðru sinni hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Unnt er að senda inn umsögn um drögin til og með 26. nóvember 2009 á netfangið postur@sam.stjr.is.

Sjá nánar á vef Samgönguráðuneytisins.

föstudagur 9. október 2009 kl. 15:00

142% fleiri skráningarnúmer lögð inn

Á árinu 2009 hafa innlagnir skráninganúmera ökutækja aukist stórlega borið saman við undanfarin ár (sjá mynd).

Fram til þessa hafa eigendur árstíðabundinna ökutækja lagt skráningarnúmer þeirra inn til geymslu á veturna til þess að fá felld niður opinber gjöld og eftir atvikum tryggingar. Á þetta fyrst og fremst við um ökutæki sem eru notuð mest yfir sumartímann, líkt og húsbifreiðar, fornbifreiðar og bifhjól.

Þessi mikla aukning sem nú á sér stað má fyrst og fremst rekja til breyttra skoðunarreglna sem tóku gildi fyrr á þessu ári og fólu í sér að skylt er að skoða svonefndra ferðavagna, þ.e. hjólhýsi, tjaldvagna og fellihýsi. Skoðun þessara ökutækja er nú áskilin fyrir 1. ágúst á skoðunarári og skal henni lokið fyrir 1. október á skoðunarári.

Með því að leggja númer þessara ökutækja inn til geymslu gátu eigendur ökutækjanna komið í veg fyrir að 15 þúsund króna vanrækslugjald yrði lagt á óskoðuð ökutækin. Í raun er þó um frest að ræða því þegar eigandi ökutækisins hyggst taka það aftur í notkun verður hann að byrja á að láta skoða ökutækið. Hjá Umferðarstofu er hægt að fá akstursheimild til einnar viku eftir að númerin eru tekin út en ef ekki er búið að skoða ökutækið innan þess frest leggst vanrækslugjald á það.

Þegar yfirlit yfir innlagnir og úttektir skráningarnúmera er skoðað kemur þessi árstíðabundna sveifla í ljós, þ.e. innlagnir aukast á haustmánuðum og úttektir á vormánuðum. Hins vegar er umtalsverð aukning á innlögn númera í september á þessu ári borið saman við undanfarin tvö ár. Á myndinni sést að 5239 skráningarnúmer voru lögð inn í september á þessu ári á meðan 2158 voru lögð inn til geymslu í fyrra. Þetta er 142% aukning á innlögnum skráningarnúmera á milli ára. Þessa gríðarlegu aukningu má rekja til þess að fjölmargir eigendur ferðavagna, þ.e. fellihýsa, hjólhýsa og tjaldvagna, kusu að leggja númerin inn í stað þess að færa þau til skoðunar eða eiga á hættu álagningu vanrækslugjalds.

Samanburður á innlögnum skráningarnúmera eftir mánuðum


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++