Umferðaröryggi
Ökutæki skráð á Íslandi eru flutt inn til landsins með fyrirfram ákveðna stærð af hjólbörðum sem er mjög mismunandi eftir ökutæki og framleiðanda. Þessir hjólbarðar slitna eins og aðrir hjólbarðar og þarf að skipta út með tímanum og þá er mikilvægt að ekki séu settir minni eða stærri undir ökutækið í staðinn. Við það að setja minni hjólbarða undir ökutækið fer ökutækið hægar en hraðamælir gefur til kynna og ef að stærri hjólbarðar eru settir undir ökutækið þá er hraðinn orðinn meiri en hraðamælir gefur tilkynna.
Frávik eru leyfð á mill hraða og hraðamælis. Leyfilegt frávik hraðamælis er allt að 10% yfir raunhraða að viðbættum 4 km/klst. Hraðamælir má aldrei sýna meira en 4% minni hraða en raunhraða.
Frávik eru leyfð á mill hraða og hraðamælis. Leyfilegt frávik hraðamælis er allt að 10% yfir raunhraða að viðbættum 4 km/klst. Hraðamælir má aldrei sýna meira en 4% minni hraða en raunhraða.



