Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

Slysaskýrsla 2008

Upplýsingar og samantekt úr skýrslu um umferðarslys á Íslandi árið 2008

Slysaskráning Umferðarstofu byggist á lögregluskýrslum úr gagnagrunni dómsmálaráðuneytisins. Í einhverjum tilfellum rata umferðaróhöpp ekki í gagnagrunninn heldur beint á borð tryggingafélaga en það á yfirleitt við í tilfellum þar sem ekki er um slys á fólki að ræða. 

Skýrsla 2008.  Mynd1


Markmið stjórnvalda á Íslandi í umferðaröryggismálum

  • Að fjöldi látinna í umferðinni á hverja 100 þúsund íbúa verði ekki meiri en það sem lægst gerist hjá öðrum þjóðum, fyrir árið 2016.
  • Að fjöldi látinna og alvarlega slasaðra í umferðinni lækki að jafnaði um 5% á ári til ársins 2016
  • Markmiðin miðast við meðaltal fimm ára á undan.

Fjöldi slasaðra og látinna í umferðinni 2008

  • Árið 2008 urðu 1085 slys með meiðslum og í þeim slösuðust og létust 1585 manns. Þar af voru 212 sem slösuðust alvarlega eða létust en sama tala var 210 árið 2007. 1373 slösuðust lítilega en árið árið voru þeir 1463. 12 létu lífið í umferðinni árið 2008 og er sú tala með því allra lægsta sem gerist í heiminum.  Af þeim sem létust voru 10 karlar en 2 konur.
  • Um helmingur allra sem slösuðust voru ökumenn bifreiða.  Farþegar bifreiða voru 31%, fótgangandi 7% og önnur 7% voru á bifhjóli.  Reiðhjólamenn voru um 4%.
  • Flest slys og óhöpp í umferðinni verða milli klukkan 16 og 18 síðdegis.

Banaslys árið 2008

Slysaskýrsla 08 - Mynd 212 létust í 12 umferðarslysum á árinu 2008. Árið 2007 létust 15 í 15 slysum. 11 þeirra sem létust árið 2007 voru ökumenn eða farþegar í bílum og einn var á bifhjóli.  Enginn fótgangandi lést í umferðinni þetta árið. Af þeim sem létust voru 10 karlar og 2 konur.

4 létust í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu árið 2008. Einn annar lést í þéttbýli (Akranesi) og því létust 5 í þéttbýli en 7 í dreifbýli.

2 létust af völdum ölvunaraksturs og aðrir tveir af völdum hraðaaksturs.  Ekkert banaslysið er hægt að rekja bæði til ölvunar og hraðaksturs.

Enginn lést undir 17 ára aldri.  Þrjú ungmenni á aldrinum 17-23 ára létust, tveir menn á miðjum aldri (báðir af erlendu bergi brotnir) og 7 einstaklingar 60 ára og eldri.  Athygli vekur sérlega hátt hlutfall eldra fólks í þessum hópi.

4 af 11 sem létust sem ökumenn eða farþegar í bílum voru ekki í öryggisbeltum. Að mati Rannsóknarnefndar umferðarslysa hefðu öryggisbelti mjög líklega bjargað í flestum þessara tilfella. Í ljósi þess að yfir 94% aðspurðra segjast aldrei aka utanbæjar án belta er ljóst að þeir fáu sem aka án öryggisbelta eru í mun meiri áhættu í umferðinni en þeir sem spenna beltin.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++