Upplýsingatorg
Ef smellt er á myndina hér að ofan opnast nýr gluggi með slysakorti Umferðarstofu. Birtast þá á korti öll slys sem urðu á landinu árið 2008 en hægt er að fá gögn frá 1. janúar 2007 og þá út árið 2008.
Hægt er að velja ákveðna tegund slysa sem og ákveðinn alvarleika.
Hægt er að zooma niður á ákveðið svæði með því að draga kassa utan um það svæði. Þegar búið er að zooma ákveðið langt niður (5. stig frá jörðu) þá fær hvert slys eins konar geislabaug og með því að renna músinni yfir slys með slíkan geislabaug birtast nánari upplýsingar um það slys hægra megin við kortið.
Á síðunni er einnig hægt að sjá einkunnagjöf vega skv. EuroRAP verkefninu. EuroRAP verkefnið byggðist á því að keyrt var víðst vegar um landið og vegakerfinu gefin einkunn eftir samevrópskum stöðlum.
Að lokum er svo einnig hægt að sjá vegakerfið og hjálpar það oft til að gera sér grein fyrir slysum á landsbyggðinni.




