Umferðaröryggi
Mundu að
- Börn eru smávaxin og hafa ekki jafngóða yfirsýn og fullorðnir. Í umferðinni er þýðingarmikið að sjá vel í kringum sig og sjást.
- Börn eiga erfitt með að meta fjarlægð, hraða og stærð bíla og úr hvaða átt hljóð berast.
- Börn skilja oft ekki mörg orð og orðatiltæki sem notuð eru um umferð og gera oft ekki grein fyrir þeim atriðum sem mikilvægust eru.
- Börn eiga erfitt með að setja sig í spor annarra og átta sig á hvað ökumenn ætla að gera.
- Börn fá oft skyndihugdettur sem þau framkvæma á stundinni. Viðbrögð þeirra byggjast fremur á fljótfærni en skynsemi.
- Börn sjá einungis smáatriði í umferðinni en ekki aðstæður eða umhverfi í heild.
- Börn eiga oft erfitt með að einbeita sér nema að einu atriði í einu og aðeins í stutta stund í einu.