Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Könnun á öryggi barna í bíl

Of margir nota ekki réttan búnað fyrir börn í bílum

Umferðarstofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg könnuðu öryggi leikskólabarna í bílum í maí í ár. Farið var í 68 leikskóla og öryggisbúnaður 2504 barna skoðaður. Slík könnun hefur verið gerð árlega frá árinu 1996. Á fyrstu árunum voru niðurstöður vægast sagt óásættanlegar en ljóst er að orðið hefur hugarfarsbreyting í þessum efnum. Hefur ástandið batnað þessi 15 ár þó að það sé aldrei ásættanlegt að ekki sé notaður öryggisbúnaður þegar börn ferðast í bílum og enn eru of margir að nota rangan búnað.

Helstu niðurstöður 2011:

  • Einungis 11,7% barna undir þriggja ára aldri voru í bakvísandi barnastólum.
  • 23 börn sátu fyrir framan virkan öryggispúða, þar af voru 7 börn eingöngu með bílbelti, en 3 alveg laus.
  • Ástandið í þessum efnum reyndist vera best á Hvolsvelli, Mývatni og Fáskrúðsfirði, en af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu kom Setjarnarnes best út.
  • Í Grindavík, Ólafsfirði og Reyðarfirði voru flest börn í ófullnægjandi öryggisbúnaði.
  • Notkun ökumanna á bílbeltum var einnig könnuð og að þessu sinni voru 12,7% ökumanna án belta, 16,6% karla og 9,6% kvenna. Þetta er mun betri útkoma en í fyrra en þá voru 14,0% ökumanna án belta.
  • Fylgni er á milli þess hvort ökumenn noti bílbelti og hvort börn séu í öryggisbúnaði. Þar sem ökumenn notuðu ekki belti voru 9,7% barna ekki í öryggisbúnaði, en í 1,2% tilfella þar sem belti ökumanna voru spennt.

Þróun frá fyrri árum:

  • Árið 1997 voru tilvik þar sem börn voru laus í bíl 32% af heildinni, en 2% í 2011.
  • Dregið hefur úr að börn noti eingöngu bílbelti. Var það tæplega 20% 1999 en í ár um 6%. Það telst þó of hátt hlutfall þar sem bílbelti ein og sér teljast á engan hátt nægjanlegur öryggisbúnaður fyrir börn á leikskólaaldri.

Staðreyndir:

  • Barn lægra en 150 sm á hæð má ekki sitja í framsæti bifreiðar sem búin er uppblásanlegum öryggispúða fyrir framan sætið. Höggið sem öryggispúðinn gefur þegar hann springur út getur leitt barn til dauða þó hann veiti fullorðnum öryggi.
  • Barn undir 18 kg er mun betur varið í bakvísandi barnabílstól en framvísandi stól ef bíllinn lendir í árekstri. Höfuð barns á þessum aldri er hlutfallslega stærra og þyngra en höfuð eldra barns og hálsliðir ekki fullþroskaðir. Snúi barnið fram er líklegra að það hljóti alvarlega áverka á mænu, hálsliðum og heila í árekstri.
  • Öryggisbelti er ekki fullnægjandi búnaður fyrir barn sem er undir 36 kg. Fyrr er beinagrind barna ekki orðin nægilega þroskuð til að öryggisbeltið sitji rétt. Bílbeltið getur veitt barni undir 36 kg alvarlega áverka í kviðarholi lendi það í árekstri.
  • Skylt er að öll börn njóti þess öryggis sem fylgir notkun öryggisbúnaðar í bíl. Ökumaður sem ekki sinnir þessum skyldum má búast við að verða sektaður af lögreglu og að brot hans verði skráð í ökuferilsskrá. Sektin er 10 þúsund krónur á hvert barn sem er laust í bílnum.

Hér má sjá skýrslu um könnunina í heild sinni

Sækja skjal

Nánari upplýsingar um könnunina veita:

Fræðslufulltrúar Umferðarstofu  - fraedsla@us.is
Dagbjört H. Kristinsdóttir hjá Landsbjörgu í síma 570 5912


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++