Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Að- og fráreinar

Akstur um að- og fráreinar.

Það er algengt þegar ökumenn eru að koma inn á akbrautir eftir svonefndum aðreinum að þeir lendi í vandræðum með að komast inn í umferðina sem fyrir er. Það er oftast vegna þessa að bíllinn er ekki búin að ná sama hraða og umferðin sem fyrir er eða þá að ökumenn gefa honum ekki pláss til að komast inn á brautina. Hvort tveggja er auðvelt að leysa. Krefst bara tillitsemi og smá hæfni. Ef þú ert að koma inn á akbraut af aðrein skaltu gefa stefnuljós og nota hliðarspegla bílsins til að aðgæta hvort það sé pláss fyrir þig til að komast inn á götuna. Líttu örsnöggt til hliðar til að vera viss um að það sé enginn bíll til hliðar við þig. Gættu þess að missa ekki athyglina af því sem framundan er. Vertu búin að ná sama hraða og umferðin sem þú ert að fara inn í og sveigðu síðan varlega inn á brautina. Ef þú ert á tveggja akreina götu sem aðrein liggur að skaltu setja þig í spor þess ökumanns sem ætlar sér að komast inn á brautina. Farðu yfir á akreinina vinstra megin og búðu þannig til pláss fyrir hann. Einnig er hægt að skapa honum rými með því að hafa nóg bil á milli þín og næsta bíls fyrir framan.
Ef þú ert að fara af akbraut inn á frárein skaltu fara inn á hana strax þar sem hún byrjar annars er hætta á því að þú truflir og hægir á umferð sem er á akbrautinni.
Með þessu komumst við hraðar og auðveldar á milli staða.

Fræðslumyndband - Aðreinar - Fráreinar

You must install the Flash Player to watch this movie online.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++