Umferðaröryggi
Bil á milli bíla
Aftanákeyrslur eru meðal algengustu umferðaróhappa hér á landi. Ástæðan er einfaldlega of lítið bil á milli bíla og skortur á athygli. Til þess að meta það hvort bilið í næsta bíl sé nægjanlega mikið er til ágæt aðferð sem kallast ¿þriggja sekúndnareglan¿. Þú einfaldlega tekur mið af t.d. ljósastaur sem bíllinn á undan ekur hjá. Telur síðan eittþúsund og einn, eittþúsund og tveir, eittþúsund og þrír og ef að þú ert ekki kominn að staurnum þegar talningunni er lokið þá er fjarlægðin í lagi - miðað við bestu aðstæður. Ef þú ert hinsvegar kominn framhjá staurnum áður en þú náðir að telja upp á þrjár sekúndur þá er bilið of lítið. Hætta er yfirvofandi.



