Upplýsingatorg
Skoðun ökutækja
Unnt er að sækja um frest hjá skoðunarstöðvum, en með frestbeiðninni verður að fylgja staðfesting verkstæðis á pöntun viðkomandi varahluts.
Þann 9. janúar 2009 tók ný reglugerð um skoðun ökutækja gildi. Breytingar á þeirri reglugerð tóku gildi 29. júlí og er tekið tillit til þeirra í þessari umfjöllun. Helstu nýmæli reglugerðarinnar eru þau að skoðanatíðni ökutækja hefur breyst og er nú með eftirfarandi hætti:
- Skoðanatíðni ökutækja sem eru skráð eftir gildistöku reglugerðarinnar, skal fyrst færa til aðalskoðunar á fjórða ári eftir að þau eru skráð fyrsta sinni, að skráningarárinu frátöldu. Síðan skal skoða þau annað hvert ár í tvö næstu skiptin og árlega eftir það.
- Skoðanatíðni ökutækja sem skráð voru fyrir gildistöku reglugerðarinnar skal eftir gildistöku reglugerðarinnar færa til aðalskoðunar sem hér segir:
|
Ökutæki skráð: 1. 2008 skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn 2011, síðan eftir tvö ár og árlega eftir það; |
Á þetta við um önnur ökutæki en þau sem færa skal til skoðunar árlega og eftir neðangreindum sérreglum.
Fram að gildistöku reglugerðarinnar höfðu hjólhýsi (fellihýsi) og tjaldvagnar ekki verið skoðanaskyld. Eftir gildistöku reglugerðarinnar eru þau skoðanaskyld líkt og önnur ökutæki. Þá eru fornbifreiðar skoðanaskyldar annað hvert ár.
Hvenær skal skoða ökutæki?
Ökutæki, skráð hér á landi, utan dráttarvéla og torfærutækja, skal færa til aðalskoðunar í þeim mánuði sem síðasti tölustafur á skráningarmerki ökutækisins vísar til. Þannig skal ökutæki með skráningarmerkin sem endar á 1 fært til skoðunar í janúar og ökutæki með skráningarmerki sem endar á 0 í október.
Hafi ökutæki einkamerki sem endar á tölustaf þá segir það númer til um skoðunarmánuðinn. Ef einkanúmerið endar hinsvegar á bókstaf skal færa það til skoðunar í fimmta mánuði ársins, þ.e. maí.
Ef ekki hefur gefist kostur á að færa ökutækið til almennrar skoðunar í skoðunarmánuði þess skal það í síðasta lagi fært til skoðunar fyrir lok annars mánaðar þaðan í frá.
Færa skal eftirtalin ökutæki til aðalskoðunar fyrir 1. ágúst á skoðunarári:
- Fornbifreið
- Húsbifreið
- Bifhjól, þ.m.t. fornbifhjól og létt bifhjól
- Hjólhýsi (fellihýsi)
- Tjaldvagn
Þessi ökutæki eru því eins og þau séu með 7 í endastaf og fá vanrækslugjald þann 1. október hafi þau ekki verið færð til skoðunar fyrir þann tíma.
Aðalskoðun árlega:
Þau ökutæki sem færa skal árlega til aðalskoðunar eru eftirfarandi:
- Vörubifreið
- Hópbifreið
- Leigubifreið til mannflutninga
- Bifreið ætluð til sjúkraflutninga
- Eftirvagn með leyfða heildarþyngd meiri en 3.500 kg.
- Bifreiðar til neyðaraksturs
Þau ökutæki sem ekki eru lengur skoðuð árlega eru sendibifreiðar, bifreiðar sem ætlaðar eru til leigu í atvinnuskyni án ökumanns, kennslubifreiðar, og létt bifhjól.
Hjólhýsi (fellihýsi) og tjaldvagnar:
Hjólhýsi (fellihýsi) og tjaldvagna skal færa til skoðunar fyrir 1. ágúst á eftirfarandi skoðunarári:
Skráð:
- 2009 skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn 2013, síðan á tveggja ára fresti;
- 2008 skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn 2012, síðan á tveggja ára fresti;
- 2007 skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn 2011, síðan á tveggja ára fresti;
- 2006 skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn 2010, síðan á tveggja ára fresti;
- 2005 og fyrr skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn 2009, síðan á tveggja ára fresti.
Nánari upplýsingar um eftirvagna og tengitæki er að finna hér.
Allar skoðunarstofur á landinu geta tekið á móti eftirvögnum sem eru hemlalausir og undir 750 kg að þyngd.
Á eftirtöldum skoðunarstofum er unnt að láta skoða vagna sem eru allt að 3.500 kg að þyngd:
- Aðalskoðun, Hjallahrauni 4, 220 Hafnarfirði
- Aðalskoðun, Skemmuvegi 6, 200 Kópavogi (Með fyrirvara um lengd og hæðar eftirvagns).
- Frumherji, Hesthálsi, 110 Reykjavík
- Frumherji, Klettagörðum, 104 Reykjavík
- Frumherji, Njarðarbraut 7, 260 Reykjanesbæ
- Frumherji, Norðurlandsvegi, 540 Blönduósi
- Frumherji, Smiðjuvöllum 17, 300 Akranesi
- Frumherji, Frostagötu 3a, 603 Akureyri
- Frumherji, Sólbakka 2, 310 Borgarnesi
- Frumherji, Hrísmýri 9, 800 Selfossi
- Frumherji, Lagarbraut 1, 701 Fellabæ
- Frumherji, Borgartúni 8, 550 Sauðárkróki
- Frumherji, Haukamýri, 640 Húsavík
- Tékkland, Reykjavíkurvegi 54, 220 Hafnarfirði
Eftirvagnar:
Eftirvagnar, sem ekki teljast hjólhýsi (fellihýsi) eða tjaldvagnar, skal færa til skoðunar eftir endastaf í skráningarmerki. Um þrjá flokka eftirvagna er að ræða:
- Eftirvagnar sem eru undir 750 kg að þyngd eru ekki skoðunarskyldir.
- Eftirvagnar sem eru þyngri en 750 kg en léttari 3.500 kg skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn á þriðja ári, síðan árlega frá og með fimmta ári. Eftirvagnar skráðir árið 2009 og síðar skulu færðir til aðalskoðunar í fyrsta sinn á fjórða ári. Síðan skal skoða þá annað hvert ár í tvö næstu skiptin og árlega eftir það.
- Eftirvagnar sem eru þyngri en 3.500 kg skal færa til aðalskoðunar árlega.
Nánari upplýsingar um eftirvagna og tengitæki er að finna hér.
Fornbifreiðar og fornbifhjól:
Fornbifreiðar og fornbifhjól skal færa til skoðunar fyrir 1. ágúst annað hvert ár. Öll skráð fornbifhjól og fornbifreiðar átti að færa til skoðunar árið 2009 til að þau myndu öðlast nýja skoðanatíðni.
Nýskráningarár fornbifreiða og fornbifhjóla ræður því hvort þær fái eins eða tveggja ára skoðun árið 2009. Reglan er eftirfarandi:
- Fornbifreið eða fornbifhjól sem er nýskráð á Íslandi á sléttu ári skal koma til skoðunar á sléttu ári. Sem dæmi má nefna fornbifreið eða fornbifhjól sem var nýskráð á Íslandi árið 1972. Slík ökutæki fá eins árs skoðun árið 2009 og skal mæta aftur til skoðunar árið 2010.
- Fornbifreið eða fornbifhjól sem er nýskráð á Íslandi á oddatöluári skal koma til skoðunar á oddatöluári. Sem dæmi má nefna fornbifreið eða fornbifhjól sem var nýskráð á Íslandi árið 1973. Slík ökutæki fá tveggja ára skoðun árið 2009 og mætir því næst árið 2011.
Fornbifreið verður að vera skráð í notkunarflokkinn fornbifreið í ökutækjaskrá til þess að öðlast 2ja ára skoðanatíðni. Fornbifhjól verður að vera skráð í notkunarflokkinn fornbifhjól í ökutækjaskrá til þess að öðlast 2ja ára skoðanatíðni. Ekki er nægilegt að ökutækin séu 25 ára að aldri. Til þess að skrá bifreið fornbifreið og/eða bifhjól sem fornbifhjól skal notast við eyðublað US.115. Til þess að sækja um fornmerki skal notast við eyðublað US.156. Á því eyðublaði er einnig unnt að breyta um notkunarflokk.
Tekið skal fram að fornbifhjól eru nú skoðuð á 2ja ára fresti líkt og fornbifreiðar.
Endurskoðun:
Til endurskoðunar skal almennt veita frest til loka næsta mánaðar. Sé ökutæki fært til endurskoðunar innan tilskilins frest skal endurskoðunin eingöngu fela í sér skoðun á þeim atriðum sem athugasemd var gerð við í fyrri skoðun. Ef tilskilinn frestur er liðinn skal ökutækið skoðað í heild og þarf eigandi/ umráðamaður þá að greiða skoðunargjald í samræmi við það.
Sé við aðalskoðun gerð athugasemd um atriði, sem ekki er unnt vegna skorts á varahlutum að bæta úr innan tilskilins frests, er heimilt að veita mánaðar frest til viðbótar áður útgefnum fresti, að því tilskildu að áður útgefinn frestur sé ekki útrunninn. Er sótt um slíkan frest á skoðunarstofu.
Vanrækslugjald lagt á óskoðuð ökutæki:
Ef eigendur eða umráðamenn ökutækja færa þau ekki til skoðunar á réttum tíma skal setja á gjald að fjárhæð 15.000 kr. sem greiða skal á skoðunarstofu við almenna skoðun og endurskoðun hafi ökutæki ekki verið fært til skoðunar og endurskoðunar á réttum tíma. Gjaldið leggst á ökutæki tveimur mánuðum eftir skoðunarmánuð þess.
Heimilt er að lækka gjaldið um allt að 50%, eða í 7.500 kr. ef ökutækið er fært til skoðunar á skoðunarstöð, skráningarmerki þess lögð inn eða ökutækið skráð úr umferð innan mánaðar frá álagningu gjaldsins. Ef ökutækið er afskráð til úrvinnslu innan mánaðar frá álagningu gjaldsins er gjaldið fellt niður. Sýslumaðurinn í Bolungarvík er innheimtumaður gjaldsins. Allar fyrirspurnir vegna gjaldsins skulu berast honum í síma 456-1200 eða með fyrirspurn á netfangið: vekja@syslumenn.is
Við eigendaskipti á ökutæki er heimilt að greiða vanrækslugjald án þess að ökutækið sé fært til aðalskoðunar/endurskoðunar ef eftirfarandi tvö skilyrði eru uppfyllt:
- Skoðunarstofu er afhent beiðni um eigendaskipti að ökutæki
- Skoðunarstofu er jafnframt afhent skráningarmerki ökutækisins og þess óskað að það verði skráð úr umferð.
Fjarlægð frá skoðunarstöð:
Ef eigandi ökutækis býr í 80 km fjarlægð frá skoðunarstofu og hefur ekki haft tækifæri á að láta skoða ökutækið sitt innan frests (3ja mánaða) getur hann fengið viðbótarfrest í tvo mánuði með því að tilkynna sýslumanninum í Bolungarvík um þá ósk sína.
Skoðun erlendis:
Ef ökutæki sem skráð er hér á landi er í notkun erlendis skal færa það til skoðunar hjá viðurkenndri skoðunarstöð innan EES svo komist sé hjá álagningu vanrækslugjalds. Eigandi ökutækisins skal senda Umferðarstofu erlendu skoðunarskýrsluna í tölvupósti á netfangið us@us.is ásamt upplýsingum um heimilisfang eiganda svo unnt sé að senda viðkomandi nýjan skoðunarmiða sem hann sjálfur límir á skráningarmerki ökutækisins. Greiða þarf kr. 900 fyrir þessa afgreiðslu, sem skiptist annars vegar í lögbundið umferðaröryggisgjald (kr. 400) og hins vegar póstkostnað (kr. 500), inn á reikning Umferðarstofu 515-26-5802, kt. 660802-3120.
Ef vafi leikur á hvort tiltekin skoðunarstöð sé viðurkennd skal hafa samband við Umferðarstofu með því að senda tölvupóst á netfangið us@us.is
Hver ber ábyrgð á að ökutæki sé fært til skoðunar:
Eigandi (umráðamaður) ökutækis ber ábyrgð á því.




