Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Fréttir

Umferðarstofa í öðru sæti í kosningu um stofnanir ársins

laugardagur 17. maí 2008 kl. 12:00

Í flokki stærri stofnana, þar sem starfsmenn eru 50 eða fleiri, er Ríkisskattstjóri efstur á lista yfir stofnun ársins. Umferðarstofa er í öðru sæti og í því þriðja Sjálfbjargarheimilið. Í hópi minni stofnana er Skattrannsóknarstjóri ríkisins efstur, Sýslumaðurinn í Vík í öðru sæti og Skattstofa Austurlands í því þriðja. Þess má geta að í fyrra var Umferðarstofa í 27 sæti og það má því ljóst vera að almenn starfsánægj innan stofnunarinnar hefur stóraukist. Þetta var í þriðja sinn sem SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu stóð að vali á Stofnun ársins. Könnunin náði til félagsmanna SFR á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað. Ennfremur var öllum stofnunum ríkisins gefinn kostur á því að allir starfsmenn, óháð því í hvað stéttarfélögum þeir eru, gætu tekið þátt. Bent var á að slíkt myndi gagnast stofnunum betur í mati þeirra á frammistöðu sinni. Í ár nýttu 35 stofnanir sér þennan möguleika, miðað við 19 stofnanir árið 2007.

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++