Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Frétt lesin

Umferðarstofa Stofnun ársins 2010

föstudagur 7. maí 2010 kl. 18:32

Niðurstöður úr könnuninni á Stofnun ársins 2010 voru kynntar á Nordica í dag 7. maí kl 17:00 en þetta er í fimmta sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins. Sigurvegarar voru Umferðarstofa í hópi stærri stofnana og Sýslumaðurinn á Hvolsvelli í hópi minni stofnana. Þetta er annað árið í röð sem Umferðarstofa er valin Stofnun ársins.

Könnunin var gerð meðal félagsmanna SFR, þátttakendur voru spurðir um trúverðugleika stjórnenda, vinnuskilyrði, ímynd, sjálfstæði, sveigjanleika, ánægju með launakjör og fleira. Ennfremur var stofnunum gefin kostur á að allir starfsmenn stofnunarinnar tækju þátt í könnuninni óháð því í hvaða stéttarfélagi þeir væru og höfðu allir starfsmenn Umferðarstofu kost á því. Ljóst er að þátttaka þeirra og sú einkunn sem þeir gefa vinnustað sínum annað árið í röð er vitnisburður góðs starfsanda, starfsmannastefnu og stjórnunar stofnunarinnar. Alls tóku tæplega 200 stofnanir þátt í ár og rúmlega 4000 starfsmenn.

Í hópi minni stofnana fékk Sýslumaðurinn á Hvolsvelli hæstu einkunn, eða 4,73 í heildareinkunn af 5 mögulegum. Í öðru sæti var Sýslumaðurinn í Vík og í því þriðja var Skattrannsóknarstjóri ríkisins. Í hópi stærri stofnana fékk Umferðarstofa hæstu einkunn, 4,18 í heildareinkunn af 5 mögulegum. Í öðru sæti var Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi og í því þriðja var Landgræðsla ríkisins. Hástökkvarinn í ár var Sýslumaðurinn á Siglufirði, en stofnunin bætti sig um 48 sæti á milli ára.


Hér sést hvar Dagný Jónsdóttir framkvæmdastjóri ökutækjasviðs Umferðarstofu veitir viðurkenningunni viðtöku úr höndum Árna Stefáns Jónssonar formanni SFR. Á myndinni lengst til hægri eru fulltrúar starfsmanna Umferðarstofu með verðlaunin, fv. Þorbjörg Jónsdóttir; Sædís Jónasdóttir, Ólöf Friðriksdóttir, Dagný Jónsdóttir og Gunnar Geir Gunnarsson. 


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++