Frétt lesin
Umferðarstofa stofnun ársins 2009
föstudagur 8. maí 2009 kl. 18:52
Umferðarstofa og Sýslumaðurinn í Vík hafa verið valdar stofnanir ársins 2009. Umferðarstofa í flokki stærri stofnana þar sem starfsmenn eru 50 eða fleiri en Sýslumaðurinn í Vík í smærri stofnunum. Í öðru sæti stærri stofnana var Ríkisskattstjóri en hann var í fyrsta sæti í fyrra.
SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu stóð nú í fjórða sinn að vali á Stofnun ársins. Könnun var gerð meðal félagsmanna SFR á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað. Ennfremur var stofnunum gefin kostur á að allir starfsmenn stofnunarinnar tækju þátt í könnuninni óháð því í hvaða stéttarfélagi þeir væru og höfðu allir starfsmenn Umferðarstofu kost á því. Ljóst er að þátttaka þeirra og sú einkunn sem þeir gefa vinnustað sínum er vitnisburður góðs starfsanda, starfsmannastefnu og stjórnunar stofnunarinnar.
Birgir Hákonarson framkvæmdastjóri Umferðaröryggissviðs og staðgengill forstjóra veitti viðurkenningunni viðtöku og sagði hann að Umferðarstofa legði mikla áherslu á góða starfsmannastjórnun. Til að ná þeim markmiðum væru reglulega gerðar kannanir og mælingar á líðan og árangri starfsmanna.
Þess má geta að árið 2007 var Umferðarstofa í 27 sæti og í fyrra var stofnunin í öðru sæti. Í niðurstöðum könnunarinnar árið 2009 kemur fram að trúverðugleiki stjórnenda fær einkunnina 4,68 sem að er hæsta einkunn í þeim flokki en tekið skal fram að meðaltalið er 3,86. Starfsmenn Umferðarstofu gáfu starfsandanum einkunnina 4,71 sem að er hæst allra stofnana og talsvert hærra en hjá næstu stofnun en meðaltalið er 4,13.

Á myndinni lengst til vinstri má sjá Birgi Hákonarson ásamt samstarfsfólki fagna viðurkenningunni. Á hinum myndunum sést hvar hann veitir viðurkenningunni viðtöku úr hendi Árna St. Jónssonar formanni SFR.



