Frétt lesin
Nýjar verklagsreglur um upplýsingamiðlun úr ökutækjaskrá
þriðjudagur 17. janúar 2006 kl. 13:09
Umferðarstofa hefur í dag gefið út nýjar verklagsreglur um upplýsingamiðlun úr ökutækjaskrá, en reglurnar voru fyrst gefnar út árið 1997 að kröfu Tölvunefndar (nú Persónuvernd). Endurskoðun á reglunum var gerð í framhaldi af þeirri niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins að Umferðarstofa geti ekki tekið þátt í sölu upplýsinga á samkeppnismarkaði nema aðgreina þá starfsemi frá annarri starfsemi stofnunarinnar. Umferðarstofa hefur því ákveðið að draga sig út úr smásölu upplýsinga úr ökutækjaskrá og aðeins selja upplýsingar til vinnsluaðila sem munu annast söluna áfram til neytenda. Enda þótt breytingin eigi sér áðurnefndan aðdraganda er það mat stofnunarinnar að hún muni að lokum leiða til betri þjónustu fyrir neytendur, enda séu fyrirtæki með sérþekkingu í upplýsingavinnslu betur fær um að mæta ólíkum þörfum neytenda en Umferðarstofa. Frá 15. febrúar verður því aðeins hægt að sækja upplýsingar í ökutækjaskrá í gegnum vinnsluaðila sem hafa gert samning við Umferðarstofu. Nánari upplýsingar um vinnsluaðila er að finna á sérstakri síðu um upplýsingamiðlun úr ökutækjaskrá hér á vefnum (smellið hér).
Samhliða framangreindri breytingu eru þær nýjungar að finna í nýjum verklagsreglum að Umferðarstofa hyggst veita einstaklingum aðgang að upplýsingum um sín ökutæki í gegnum vefinn án endurgjalds. Á grundvelli þessarar heimildar er nú þegar búið að leggja grundvöll að samstarfi Umferðarstofu og Ríkisskattstjóra um að einstaklingar geti sótt þessar upplýsingar í gegnum þjónustusíðu sína á vef Ríkisskattstjóra með notkun á varanlegum veflykli.
Í reglunum er einnig að finna þá nýjung að Umferðarstofa tekur af vafa um að hún hyggst veita þeim opinberu aðilum er þurfa að nota upplýsingar úr ökutækjaskrá vegna lögbundinnar starfsemi sinnar slíkar upplýsingar án endurgjalds. Oft er um að ræða gagnkvæm upplýsingaskipti milli opinberra aðila og í framkvæmd hefur það verið misjafnt hverjir innheimta gjald fyrir upplýsingarnar og hverjir ekki. Í ljósi þess að hér er í öllum tilvikum um að ræða upplýsingar í eigu ríkisins, sem að þessu leyti hafa það hlutverk að gera hinum opinberu aðilum kleift að gegna hlutverkum sínum samkvæmt lögum, telur Umferðarstofa eðlilegt að ekki komi til gjaldtaka fyrir upplýsingarnar.



